Fara í efni
15.07.2026 Tilkynningar

Blautþurrkur eiga ekki heima í klósettinu

Deildu

Sveitarfélagið Hornafjörður vill minna íbúa og gesti á að blautþurrkur, sótthreinsiklútar og annað rusl má ekki setja í klósett eða niðurföll.

Slíkur úrgangur leysist ekki upp eins og klósettpappír og getur valdið alvarlegum skemmdum á fráveitukerfinu.

Nýverið skemmdist dæla í fráveitukerfi sveitarfélagsins eftir að hún fylltist af blautþurrkum. Slík tjón geta valdið stíflum, bilunum og kostnaðarsömum viðgerðum sem hægt er að koma í veg fyrir með réttri umgengni.

Blautþurrkur, klútar, tannþráður, eyrnapinnar, smokkar og aðrar hreinlætisvörur eiga að fara í ruslið en ekki í klósettið.

Með því að passa hvað fer í fráveitukerfið verndum við bæði innviði sveitarfélagsins og umhverfið.

www.klosettvinir.is/