Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Endurnýjun Jökulfellsvallar, jarðvinna og yfirborðsfrágangur“ eins og því er lýst í meðfylgjandi gögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboð skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og er það skilgreint í útboðsgögnum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Útboð þetta felst í fullnaðarfrágangi undirbyggingar fyrir nýjan gervigrasvöll á Jökulfellsvelli á Höfn í Hornafirði. Núverndi vallarsvæði er nú grasvöllur. Einnig skal byggja upp undir nýjar hlaupabrautir við knattspyrnuvöll þar sem breikkun verður.
Framkvæmdin felur í sér eftirfarandi verkþætti:
- Upprif á náttúrugrasi af vallarsvæðinu ásamt lífrænu undirlagi þess.
- Jarðvegsskipti undir knattspyrnuvöll, nýjar hlaupabrautir og stökksvæði.
- Fullnaðarfrágang nýrra fráveitulagna
- Fullnaðarfrágang nýrra vatnslagna.
- Fullnaðarfrágang vatnsúðarakerfis.
- Fullnaðarfrágang undirbyggingar undir gervigras.
- Fullnaðarfrágang undirbyggingar nýrra hlaupabrauta og stökksvæða.
- Uppsetning á nýjum rennustein umhverfis innstu hlaupabrautina.
Gúmmípúði undir gervigras og hlaupabrautir, gervigras á knattspyrnuvöll, fræsing á núverandi hlaupabrautarefni og nýtt hlaupabrautarefni er ekki innifalið í þessu útboði.
Framkvæmdartími
Framkvæmdatími hefst þegar verkkaupi hefur tekið tilboði bjóðanda.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 26. mars 2027
Verkinu telst ekki lokið af hálfu verktaka fyrr en hann hefur staðið að fullu við skuldbindingar sínar samkvæmt útboðsgögnum. Þá skal aðstaða verktaka hafa verið fjarlægð og vinnusvæðið hreinsað að fullu. Vísað er í kafla 0.6.4 varðandi ákvæði um tafabætur ef verktaki skilar eigi verkinu innan tilskilins tíma.
Útboðsgögn
Til útboðsgagna þessa verks teljast:
- Útboðs- og verklýsing, dagsett í október 2026
- Tilboðsblað og tilboðsskrá
- Teikningar samkvæmt teikningaskrá.
- Spurningar og svör við þeim sem fram kunna að koma á tilboðstíma.
- Aðrir íslenskir staðlar, lög, reglugerðir og samþykktir er gilda um framkvæmdir sem þessar, eða sem er sérstaklega vísað til.
- Aðrir staðlar og gögn sem vísað er til í verklýsingum eða á teikningum
- Innkaupareglur Sveitarfélags Hornafjarðar
- Reglur um merkingar vegna framkvæmda eða viðburða á eða við veg.
útgáfa janúar 2025.
https://www.vegagerdin.is/media/2025/02/reglur-um-vinnusvaedamerkingar-_1.1.2025.pdf
Að auki gildir staðall ÍST 30:2012 „Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir“ að því marki sem við á og hann stangist ekki á við gögn verksins sem gilda þá umfram staðalinn.
Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Endurnýjun Sindravallar, jarðvinna og yfirborðsfrágangur“. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Endurnýjun Jökulfellsvallar, jarðvinna og yfirborðsfrágangur“.
Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: utbod@hornafjordur.is og trausti@hornafjordur.is þá merkja í “subject” reitinn: „Endurnýjun Sindravallar, jarðvinna og yfirborðsfrágangur“ - FYRIRSPURN“.
Skil og opnun tilboða
Tilboðum, ásamt öllum fylgiskjölum, skal skila rafrænt á tölvupóstfangið utbod@hornafjordur.is eigi síðar en mánudaginn 26. október kl. 14:00. Enginn formlegur opnunarfundur verður haldinn en upplýsingar um niðurstöðu opnunar verða birtar bjóðendum eftir að tilboð hafa verið opnuð.
Skjöl skulu vera dagsett og undirrituð af viðkomandi aðilum, eftir því sem við á. Tilboð telst vera skuldbindandi þegar því hefur verið skilað í tölvupósti.
Tilboðum er ekki hægt að skila eftir að útboðsfrestur rennur út.
Bjóðendur bera einir ábyrgð á því að tilboð þeirra berist á réttum tíma. Þeir eru því eindregið hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila inn tilboðum.
Bjóðendur geta dregið tilboð sitt til baka hvenær sem er, þar til útboðsfrestur rennur út.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum séu þau yfir kostnaðaráætlun en verði tilboði yfir kostnaðaráætlun tekið gilda sömu reglur um það og töku tilboðs almennt.
Nánari upplýsingar veitir: Trausti Magnússon, trausti@hornafjordur.is sími 470-8000
