Sveitarfélagið Hornafjörður vekur athygli á því að á næstunni mun fara fram gatnagerð og lagnavinna á Fiskhól og Silfurbraut. Vegna þessarar vinnu verða göturnar lokaðar og framkvæmdasvæðið verður lokað fyrir allri bílaumferð (enginn aðgangur ökutækja).
Tímaáætlun framkvæmda
Framkvæmdaáætlun til viðmiðunar fyrir Silfurbraut er skipt í þrjá áfanga:
- 1. áfangi: Upphaf 24.06.2026 og lok 15.07.2026.
- 2. áfangi: Upphaf 08.07.2026 og lok 05.08.2026.
- 3. áfangi: Upphaf 29.07.2026 og lok 26.08.2026.
Framkvæmdir á Fiskhól munu fara fram í júlí og ágúst.
Hjáleiðir og umferð
Íbúar sem búa í hverfinu við Silfurbraut eru beðnir um að nota hjáleið í gegnum Smárabraut og Dalbraut á meðan á framkvæmdum stendur.
Viðeigandi merkingar vegna hjáleiða verða settar upp á þessum götum.
Bílastæði fyrir íbúa
Á meðan á lokun stendur verða afmörkuð bílastæði leyfð fyrir íbúa.
Viðhengdar teikningar sýna nákvæmlega hvar þessi stæði eru staðsett við bæði Fiskhól og Silfurbraut. Íbúar eru hvattir til að kynna sér merkingar á uppdrættinum vel.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum sýndan skilning.
Nánari upplýsingar
Ef frekari spurningar vakna er velkomið að hafa samband

