Fara í efni
16.11.2026 Tilkynningar

Hagahverfi - göngustígur að verslun Krónunnar - Verðfyrirspurn

Deildu

Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Hagahverfi – göngustígur að verslun Krónunnar“ eins og því er lýst í meðfylgjandi gögnum.

Yfirlit yfir verkið

Verkið felst í gerð göngustígs í Hagahverfi að verslun Krónunnar ásamt tilheyrandi jarðvinnu, fyllingum, niðursetningu röra, uppsetningu ljósastaura, yfirborðsfrágangi og frágangi aðliggjandi svæða.

Gert er ráð fyrir að grafið verði 80 cm undir endanlegt yfirborð göngustígs og komið fyrir samsvarandi burðarlagi. Ekki verður lagt jöfnunarlag eða malbik í þessum verkáfanga. Verktaki skal annast allar nauðsynlegar mælingar, flutning efnis, útlagningu og þjöppun burðarefna, lagningu síudúks, niðursetningu rör og allan nauðsynlegan frágang.

Bjóðendur skulu verðleggja viðkomandi einingar samkvæmt magnskrá. Uppgefið magn er áætlað og endanlegt uppgjör miðast við samþykkt og mælt magn unninna verka.

Framkvæmdartími

Framkvæmdartími og verklok verða ákveðin í samráði við verkkaupa við samningsgerð.

Gögn

Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á trausti@hornafjordur.is og óska eftir gögnum vegna verksins „HAGAHVERFI – GÖNGUSTÍGUR AÐ VERSLUN KRÓNUNNAR“. Hlekkur á gögnin verður sendur í kjölfarið. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts: „HAGAHVERFI – GÖNGUSTÍGUR AÐ KRÓNUNNI – GÖGN“.

Frekari fyrirspurnir skal senda á trausti@hornafjordur.is og merkja viðfangsefni pósts: „HAGAHVERFI – GÖNGUSTÍGUR AÐ KRÓNUNNI – FYRIRSPURN“. Fyrirspurnir skulu berast í síðasta lagi þremur virkum dögum fyrir skilafrest tilboða.

 Rafrænt skil og opnun tilboða

Tilboðum, ásamt öllum fylgiskjölum, skal skila rafrænt á tölvupóstfangið trausti@hornafjordur.is eigi síðar en mánudaginn 30. nóvember 2026 kl. 14:00. Enginn formlegur opnunarfundur verður haldinn en upplýsingar um niðurstöðu opnunar verða birtar bjóðendum eftir að tilboð hafa verið opnuð.
Skjöl skulu vera dagsett og undirrituð af viðkomandi aðilum, eftir því sem við á. Tilboð telst skuldbindandi þegar því hefur verið skilað í tölvupósti.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum séu þau yfir kostnaðaráætlun. Verði tilboði yfir kostnaðaráætlun tekið gilda sömu reglur um það og töku tilboðs almennt.

Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Nánari upplýsingar veitir: Trausti Magnússon, trausti@hornafjordur.is, sími 470-8000.