Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir upplýsingum frá birgjum og framleiðendum sem geta boðið gervigraskerfi með náttúrulegum innfylliefnum til notkunar á knattspyrnuvöllum.
Sveitarfélagið vinnur um þessar mundir að því að breyta núverandi náttúrugrasvelli á Höfn í Hornafirði í gervigrasvöll og hefur áhuga á að kanna möguleika á notkun gervigraskerfis með náttúrulegum innfylliefnum í stað hefðbundinna innfylliefna úr gerviefnum.
Tilgangur markaðskönnunarinnar er að kanna framboð á slíkum lausnum og afla upplýsinga um tæknilega eiginleika þeirra, virkni, endingu og viðhaldsþörf. Upplýsingarnar sem aflað verður með markaðskönnuninni verða nýttar við ákvarðanatöku vegna fyrirhugaðs útboðs, meðal annars um umfang þess, tæknilegar kröfur og fyrirkomulag útboðsferlisins.
Eingöngu er hér um markaðskönnun (RFI) að ræða, til að afla upplýsinga um framboð á gervigraskerfum með náttúrulegu innfyllingarefni og hvernig þau falla að þörfum sveitarfélagsins. Ekki er tryggt að markaðskönnun þessi leiði til útboðs og að taka eða taka ekki þátt í henni er ekki forsenda fyrir þátttöku í hugsanlegu síðara innkaupaferli / útboði.
Nánari upplýsingar um markaðskönnunina eru aðgengilegar á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/ frá og með þriðjudeginum 10. nóvember kl. 14:00. Svörum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en föstudaginn 27. nóvember 2026, kl. 14:00.
