Fara í efni
24.06.2026 Tilkynningar

Malbikun á Höfn

Deildu

Malbikun Norðurlands verður á Höfn um miðjan september (frá 20. september) og geta  íbúar óskað eftir tilboði í malbikun á heimreiðum, bílaplönum og öðrum malbikuðum flötum við heimili sín.

Þeir sem hafa áhuga á að fá óskuldbindandi tilboð eru hvattir til að hafa samband og skrá eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn og heimilisfang
  • Símanúmer eða netfang
  • Stærð svæðis (ef þekkt)
  • Stutta lýsingu á verkinu

Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig sem fyrst svo hægt sé að áætla umfang verkefna áður en framkvæmdir hefjast.

Nánari upplýsingar og skráning:
Þórir Arnar Kristjánsson | Verkefnastjóri
Malbikun Norðurlands | thorir@malnor.is
s: 848-9114