Fara í efni
21.09.2026 Tilkynningar

Malbikunarframkvæmdir

Deildu

Sveitarfélagið Hornafjörður tilkynnir að umfangsmiklar malbikunarframkvæmdir hefjast í sveitarfélaginu miðvikudaginn 23. september næstkomandi. Unnið verður að malbikun gatna, göngustíga og bifreiðastæða samkvæmt neðangreindri verk- og tímaáætlun.

Íbúar og vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát, virða merkingar og lokanir á framkvæmdasvæðum og leggja ekki bifreiðum þar sem framkvæmdir standa yfir.

Tíma- og verkáætlun: 

23. september

  • Malbikun á bifreiðaplani við Krónuna.

24. september

  • Sandbakki (gata og göngustígur)

25. – 27. september

  • Silfurbraut (gata og göngustígur)
  • Fiskhóll (gata og göngustígur)
  • Sæbraut - Malbikun við Björgunarmiðstöð og Gáruna.
  • Við Víkurbraut 34

28. – 29. september 

  • Leirusvæðið - flestir göngustígar og svæði við leikvöll.
  • Göngustígur á golfvelli 
  • Göngustígur við hjúkrunarheimilið.

30. september og næstu daga

  • Plön(Báran, Sindrabær og gatnamót Kirkjubrautar/Víkurbrautar) ásamt smáblettum og yfirlögnum.

1. október (áætlað)

  • Fjárhagi  

Mikilvægar upplýsingar til íbúa og vegfarenda:

  • Lokanir og umferðartafir. 

Búast má við tímabundnum götulokunum og töfum á meðan framkvæmdir standa yfir. Göturnar verða opnaðar fyrir umferð jafnóðum og malbikið hefur kólnað nægilega og aðstæður leyfa.

  • Bifreiðastæði

Vinsamlegast leggið ekki bifreiðum eða vinnuvélum á þeim götum, stígum eða plönum sem tilgreind eru á viðkomandi framkvæmdadegi til að tefja ekki vinnu verktaka.

  • Veðurfyrirvari

Tímaáætlun er háð veðri og ófyrirséðum aðstæðum og getur því hliðrast ef rigning eða aðrar tafir koma upp.

Sveitarfélagið Hornafjörður biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þakkar íbúum fyrir sýndan skilning og samstarfsvilja.