Fara í efni
25.11.2026 Tilkynningar

Ormahreinsun hunda og katta 2026

Deildu

Árleg ormahreinsun gæludýra í Sveitarfélaginu Hornafirði fer fram í timburkofanum utan við áhaldahúsið á Höfn.

Til að tryggja velferð dýranna og draga úr streitu verða sérstakir tímar fyrir hunda og ketti.

Dagsetningar: 8. og 15. desember

  • Hundar: kl. 14:00–15:00
  • Kettir: kl. 15:00–16:00

Ekki þarf að panta tíma fyrirfram. Eigendur eru beðnir um að mæta með gæludýrin sín á þeim tíma sem ætlaður er hundum eða köttum.

Ef þú kemst ekki á öðrum hvorum deginum er hægt að hafa samband við Agnesi í síma 837-5962 til að bóka annan tíma fyrir ormahreinsun. Athugið að Agnes er með aðsetur í Flatey á Mýrum.

Eigendum hunda og katta ber að láta ormahreinsa dýr sín einu sinni á ári og er ormahreinsunin innifalin í leyfisgjaldi.

Allir hunda- og kattaeigendur eru jafnframt hvattir til að fylgja gildandi reglum og ganga úr skugga um að gæludýr þeirra séu skráð hjá sveitarfélaginu. Hægt er að skrá gæludýr á icepets.is.