Sveitarfélagið Hornafjörður greiðir fyrir refa- og minkaveiðar innan sveitarfélagsins í samræmi við GJALDSKRÁ vegna refa- og minkaveiða í Sveitarfélaginu Hornafirði.
Veiðimenn eru minntir á að reikningum vegna yfirstandandi veiðitímabils skal skila eigi síðar en 10. september. Fara þarf yfir reikninga og þeir þurfa að vera samþykktir af umhverfis- og skipulagssviði áður en þeir eru greiddir.
Vinsamlegast gætið þess að allar nauðsynlegar upplýsingar fylgi reikningum svo hægt sé að afgreiða þá án óþarfa tafa.
Síðar á árinu mun sveitarfélagið fara yfir núverandi samninga við refa- og minkaveiðimenn til að tryggja að samningar og fyrirkomulag séu uppfærð og að framkvæmd veiðanna sé vel skipulögð.
Ef þú stundar refa- eða minkaveiðar fyrir sveitarfélagið en ert ekki með gildan samning, eða ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir varðandi samninginn þinn, vinsamlegast hafðu samband við Xiaoling á xiaoling@hornafjordur.is.
