Fara í efni
17.11.2026 Tilkynningar

Skemmdir á gluggum við vatnstankinn – óskað eftir ábendingum

Deildu

Í gær varð vart við skemmdir á rúðum í gluggum vatnstanksins. Allt bendir til þess að atvikið hafi átt sér stað um liðna helgi.

Þeir sem kunna að hafa orðið varir við óvenjulega háttsemi við vatnstankinn um helgina, eða búa yfir upplýsingum um málið, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 470 8000 eða senda póst á netfangið afgreidsla@hornafjordur.is.

Einnig er hægt að senda inn upplýsingar í gegnum ábendingar formið á heimasíðunni. 

Öll aðstoð og ábendingar eru vel þegnar.