Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í eftirfarandi tæki og búnað. Tækin hafa mörg hver staðið ónotuð um lengri tíma og eru seld í núverandi ástandi. Ástand, virkni og heilleiki búnaðar hefur ekki verið staðfest nema annað sé sérstaklega tekið fram.
1. Haugsuga
Haugsugan hefur ekki verið notuð lengi. Árgerð og ástand eru óþekkt.
Með tækinu fylgja slöngur og tengibúnaður sem sjá má á myndum.
Verð: Tilboð.
Myndir
2. Flaghefill fyrir dráttarvél
Flaghefill sem ætlaður er til tengingar aftan í dráttarvél. Tækið var síðast notað árið 2019.
Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um núverandi ástand eða virkni.
Verð: Tilboð.
3. Glerkurlari með færibandi og móttökutrekt
Glerkurlari sem smíðaður var af Ásgeiri Inga hjá Hraðstál ehf. fyrir ruslaport sveitarfélagsins.
Tækið hefur ekki verið notað um lengri tíma. Virkni og ástand hefur ekki verið staðfest.
Verð: Tilboð.
Myndir
4. UNTHA LR1000 trjákurlari
UNTHA LR1000 trjákurlari, framleiddur í maí 2014. Samkvæmt merkiplötu eru helstu upplýsingar:
Framleiðandi: UNTHA shredding technology GmbH
Gerð: LR1000
Framleiðslunúmer: LR105461
Framleiðsluár: 05/2014
Afl: 22 kW
Rafmagn: 400 V, 50 Hz
CE-merktur búnaður
Tækið hefur ekki verið notað lengi og núverandi ástand eða virkni er ekki þekkt.
Verð: Tilboð.
Myndir
5. Broadcrown rafstöð á kerru
Rafstöð af gerðinni Broadcrown á yfirbyggðri kerru. Rafstöðin er með John Deere dísilvél, stjórnskáp, neyðarstöðvunarhnappi og innbyggðri lýsingu í yfirbyggingu.
Upplýsingar sem sjást á merkiplötum:
Rafstöð: Broadcrown
Vél: John Deere
Vélarnúmer: CD3029C033807
Rafalsgrind/kjarni: BC.184J
WDG: 311
Machine ID: A07J891464
Raðnúmer rafals: 0237945/001
Árgerð, afköst í kVA og núverandi ástand eru óþekkt. Rafstöðin hefur ekki verið prófuð nýlega og óvíst er hvenær hún var síðast í notkun.
Verð: Tilboð.
Myndir
6. Toyota Dyna pallbíll
Toyota Dyna með opnum palli, árgerð 2006.
Yfirbygging og boddý eru léleg, ryð er sýnilegt á nokkrum stöðum og gólf við ökumannssæti er orðið lélegt. Gírkassi er ónýtur. Bíllinn er því seldur sem viðgerðarverkefni eða til varahluta.
Verð: Tilboð.
Myndir
7. Pronar sanddreifari
Árg. 2016, vinnslubreidd 2,0 metrar, glussadrifinn, ástand í dag ekki vitað en virkaði vel síðast þegar hann var notaður. Stjórnbox fylgir með.
Verð: Tilboð
Myndir
Skoðun, tilboð og afhending
Tækin eru seld í því ástandi sem þau eru við skoðun, án ábyrgðar á ástandi, virkni, skráningu eða notkunarhæfi. Bjóðendum er eindregið ráðlagt að skoða viðkomandi tæki áður en tilboð er lagt fram.
Tilboð skulu tilgreina:
nafn og kennitölu tilboðsgjafa,
hvaða tæki tilboðið tekur til og tilboðsverð,
símanúmer og netfang,
Tilboð skulu berast eigi síðar en 20.nóvember á netfangið trausti@hornafjordir.is , merkt „Tilboð í tæki“.
Nánari upplýsingar og fyrirkomulag skoðunar veitir Þröstur bæjarverkstjóri í síma 895-1473 eða með tölvupósti á throsturjo@hornafjordur.is
Kaupandi ber kostnað og ábyrgð á aftengingu, hífingu, flutningi og brottnámi tækja. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum.






















