Fara í efni
05.10.2026 Tilkynningar

Tímabundin lokun á Hornafjarðarvegi

Deildu

Vegna viðgerða á brú yfir Hoffellsá verður brúin á Hornafjarðarvegi (987), gamla Hringveginum, lokuð allri umferð frá kl. 13:30 mánudaginn 5. október til kl. 00:00 fimmtudaginn 8. október.

Ekki verður unnt að aka um brúna á meðan lokun stendur yfir. Vegfarendur eru beðnir um að nota Hringveg 1 um Hornafjarðarfljót á lokunartímanum.

Engin gjaldtaka verður á Hringvegi 1 um Hornafjörð á meðan Hoffellsárbrú er lokuð.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og virða merkingar á vinnusvæðinu.

/cdn/media/Tilkynningar-myndir/lokun-hornafjardarvegur.png?v=1791194423%2C0.4946%2C0.2353

Sjá tilkynningu frá Vegagerðinni