Fara í efni
16.06.2026 Tilkynningar

Verðfyrirspurn - Báran – endurnýjun á yfirborðsefni – 2. áfangi

Deildu

Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Báran – endurnýjun á yfirborðsefni – 2. áfangi“ eins og því er lýst í meðfylgjandi gögnum.

Yfirlit yfir verkið

Verkið felst í uppsetningu aðstöðu, niðurrifi núverandi gervigrasskerfis og undirbúningi burðarlags fyrir lagningu nýs gervigrass á um 3.744 m² svæði. Að framkvæmd lokinni skal vinnusvæði vera í því ástandi að það uppfylli allar kröfur útboðsgagna fyrir áframhaldandi framkvæmdir í síðari áfanga verksins.

Framkvæmdartími

Verklok eru 11. september 2026.

Gögn

Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á  trausti@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Báran – endurnýjun á yfirborði – 2. áfangi“. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „BÁRAN – ENDURNÝJUN Á YFIRBORÐEFNI – 2. áfangi“.

Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: trausti@hornafjordur.is þá merkja í “subject” reitinn: „BÁRAN – ENDURNÝJUN Á YFIRBORÐEFNI – 2. áfangi - FYRIRSPURN“. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.

 Rafræn skil og opnun tilboða

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að senda inn tilboði á sérstöku formi eigi síðar en fimmtudaginn 25.06.2026 kl. 12:00, merktu: Báran – endurnýjun á yfirborðsefni - 2. áfangi - Tilboð”.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði og eða undirritað á netfangið trausti@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út. Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.

Það verður ekki haldinn eiginlegur opnunarfundur þar sem bjóðendur geta verið viðstaddir. Allir bjóðendur fá senda tilkynningu um að opnun hafi farið fram og fá senda opnunarskýrslu á netfang sitt.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.  Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Nánari upplýsingar veitir:   Trausti Magnússon, trausti@hornafjordur.is  sími 470-8000.