Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „SANDBAKKI - GATNAGERГ eins og því er lýst í meðfylgjandi gögnum.
Yfirlit yfir verkið
Um er að ræða endurgerð götunnar Sandbakka á Höfn. Lengd götu er um 148 m, með gangstétt beggja megin við götu. Verktaki skal rétta fyllingar af með styrktarlagi. Gatan og gangstétt skulu undirbúnar undir jöfnunarlag. Gert er ráð fyrir því að endurnýjun fráveitulagna í götunni verði lokið um miðjan ágúst en þó skal verktaki gera ráð fyrir því að samræma vinnu við gatnagerðina með þeim verktaka sem sér um endurnýjun fráveitulagna.
Gert er ráð fyrir að gatan verði malbikuð haustið 2026 og skal verktaki gera ráð fyrir að samræma þá vinnu við umsjónarmann verkkaupa.
Umfang helstu verkþátta er:
- Gröftur út götustæði : 165 m3
- Styrktarlag: 73 m3
Framkvæmdartími
Verklok eru 15. september 2026
Gögn
Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og eða til vara á trausti@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „SANDBAKKI - GATNAGERГ. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „SANDBAKKI - GATNAGERГ.
Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: trausti@hornafjordur.is þá merkja í “subject” reitinn: „SANDBAKKI - GATNAGERÐ - FYRIRSPURN“. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.
Rafrænt skil og opnun tilboða
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að senda inn tilboði á sérstöku formi eigi síðar en mánudaginn 6.júlí 2026 kl. 11:00, en þá mun opnun tilboða fara fram í fundarsal í ráðhúsi Sveitarfélags Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Tilboð ásamt fylgigögnum skal senda með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og eða til vara á trausti@hornafjordur.is og skulu þau hafa borist áður en skilafrestur er runninn út.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Nánari upplýsingar veitir: Trausti Magnússon, trausti@hornafjordur.is sími 470-8000.
