Við erum alveg ótrúlega spennt að fá engan annan en uppáhaldið okkar allra, Gunna Helga, í heimsókn á bókasafnið okkar á Höfn! Við höfum oft reynt að fá hann til okkar og nú loksins tókst það !!! Í tilefni af Sumarlestri almenningsbókasafnanna ætlar Gunni að lesa fyrir okkur upp úr einni af eldri bókunum sínum og mögulega lumar hann á einhverju nýju efni.
Gunni mætir til okkar á bókasafnið í Nýheimum fimmtudaginn 30. júlí kl.15 og við hvetjum öll sem vetlingi geta valdið að koma og hlusta og spjalla og hafa gaman með okkur.
Sumarlesturinn er enn í fullum gangi og Gúndi geithafur er enn á leiðinni frá Heimahögum og yfir í Grænuhlíð og við þurfum að hjálpa honum. Með því að lesa í 15 mínútur færist Gúndi milli staða og kemst vonandi á endanum í fallegu hagana í Grænuhlíð. Með vegabréf í hönd safna börnin stimplum, happamiðum og fá skemmtileg þrautablöð – eftir því sem þau lesa meira. Í haust höldum við svo uppskeruhátíð þar sem öll fá vegleg þátttökuverðlaun og svo drögum við einn heppinn verðlaunahafa út öllum happamiðunum sem börnin skila inn til okkar. Við hlökkum til að sjá ykkur öll á fimmtudaginn fyrir verslunarmannahelgina kl.15 á bókasafninu.
