Fara í efni

Hinsegin kvöld á Hafinu

Dags
6. ágúst
Kl.
20:00 - 23:30
Staðsetning
Hafið
Hinsegin kvöld á Hafinu er fjölbreyttur samfélagsviðburður sem fagnar hinsegin menningu og stuðlar að sýnileika, inngildingu og fordómalausu samfélagi.
Deildu

Hinsegin kvöld á Hafinu er off-venue viðburður tengdur Hinsegin Dögum sem styrktur er af samnefndum félagssamtökum. 

Kvöldið hefst með kvikmyndasýningu þar sem kvikmynd með hinsegin ívafi verður sýnd (kvikmyndatitill kemur síðar) og þar á eftir verður glimmer karaoke, en veitt verða verðlaun fyrir bæði besta glimmer dressið og bestu karaoke taktana! 

Frír bjór og snarl meðan birgðir endast! Markmið viðburðarins er að skapa öruggt og sýnilegt rými fyrir hinsegin fólk og stuðningsfólk þeirra, sem er sérstaklega mikilvægt í minni samfélögum eins og í Sveitarfélaginu Hornafirði. 

Öll eru velkomin óháð kynhneigð, eina skilyrðið er að vera fordómalaus!