Fara í efni

Hvernig líður þér eftir 3ár? - íbúafundur og vinnustofa

Dags
15. október
Kl.
20:00 - 22:00
Staðsetning
Nýheimar
Tækifæri fyrir alla íbúa til að hafa áhrif og koma sínum hugmyndum á framfæri á réttum stað.
Deildu

Framundan er vinna við aðgerðaráætlun í heilsueflandi samfélagi hjá Sveitarfélaginu Hornafirði . Aðgerðaráætlunin mun innihalda aðgerðir, kostnað og tímasetningar með mælanlegum markmiðum til tveggja til þriggja ára. 

Af því tilefni verður opinn íbúafundur með fræðslu og vinnustofu sem Ólafur Stefánsson fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og fyrirlesari leiðir fimmtudaginn 15. október kl. 20:00 í Nýheimum þar sem áherslan verður á:

  • Hvernig vilt þú að Hornafjörður verði eftir 3 ár í tengslum við heilsu og heilbrigði?
  • Hvernig komumst við þangað?
  • Hver þarf að gera hvað og hvenær þarf hvað að gerast?

Við vitum öll hversu mikilvæg heilsa er. Hreyfing, svefn, hollt mataræði, virk þátttaka og  félagsleg tengsl skipta máli fyrir líðan okkar og velferð. Um þetta er mikið rætt í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum, í skólum, á vinnustöðum, í samfélaginu og í stjórnsýslunni. Við vitum þetta.

Samt benda rannsóknir og kannanir til versnandi andlegrar og líkamlegrar heilsu. Tengsl eru á milli vanvirkni og vanlíðunar þannig að með meiri virkni,  hvort sem það er hreyfing, félagsleg þátttaka, samvera eða önnur heilsubætandi iðja, getum við stuðlað að betri heilsu og aukinni vellíðan.

Markmiðið er að okkur líði vel.

En það gerist ekki af sjálfu sér. Fyrir sum okkar er hreyfing, hollusta og virkni eðlilegur hluti af daglegu lífi. Fyrir öðrum er erfiðara að koma sér af stað, og enn erfiðara að halda áfram. Þetta á við um börn og ungmenni í auknu mæli. Þetta er grafalvarleg staða sem verður að breytast. 

Í Heilsueflandi samfélagi er heilsa og líðan allra íbúa í fyrirrúmi í allri stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum og allir hafa hlutverk.

Þetta er tækifæri fyrir alla íbúa til að hafa áhrif og koma sínum hugmyndum á framfæri á réttum stað. 

Nýheimar
Fimmtudaginn 15. október
Kl. 20:00

Hvetjum alla íbúa á öllum aldri til að mæta.

Sjá viðburðinn á facebook