Sjónarhóll hefur ferðast víða um landið síðustu mánuði en upphaflega sýningin var sett upp í Norrænahúsinu í Reykjavík og voru þau svo höfðingleg að leyfa almenningsbókasöfnum á Íslandi að fá Sjónarhól lánaðan til sín. Nú er því komið að okkur á Höfn og því fögnum við ógurlega!
Á laugardaginn munum við lesa saman um ævintýri Línu Langsokks, Tomma, Önnu, hr. Níels og litla Karls þegar Lína fer í eltingaleik við lögregluþjóna. Auk þess verður hægt að leika sér með fullt af Línu og hr.Níels böngsum, skella sér í Línu búning, perla og að sjálfsögðu föndra eitthvað skemmtilegt.
Viðburðurinn hefst kl.13 á bókasafninu, laugardaginn 17. október en bókasafnið verður opið frá kl.11-15 þann daginn. Lína minnir okkur á að halda í barnið, leikinn og fáránleikann, snúa hugtökum á hvolf og hafa gaman ! Sama á hverju bjátar. Við höfum öll gott af því að hugsa svolítið eins og Lína!
