Það eru liðin tvö, jafnvel þrjú ár síðan áhugi minn á öndun kviknaði og rúmt ár síðan ég fór til Írlands á námskeið í hagnýtri öndun (functional breathing). Á þessu ári hef ég mótað hugmyndir mínar um efnið og velt fyrir mér hvað ég tel að geti hjálpað fólki mest. Við munum skoða nokkrar mikilvægar staðreyndir um öndun, afsanna eina eða tvær mýtur, ræða málin á opinn hátt og taka saman nokkra djúpa, róandi og meðvitaða andardrætti.
Ég hlakka til að sjá ykkur öll.
Gunnar Örn
