Fara í efni

Opin fundur um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón

Dags
24. júní
Kl.
17:00 - 19:00
Staðsetning
Hrollaugstaðir
Náttúruverndarstofnun, í samstarfi við Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörð, boðar opinn fund um málefni framtíðaruppbyggingar við Jökulsárlón, þann 24. júní n.k..
Deildu

Á fundinum munu fulltrúar stýrihóps um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón fara yfir þá vinnu sem unnin hefur verið og kynna næstu skref í ferlinu. Jafnframt gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma sjónarmiðum sínum og ábendingum á framfæri. Markmið fundarins er að eiga milliliðalaust samtal um framhald málsins og tryggja að sjónarmið nærsamfélagsins nýtist við áframhaldandi mótun verkefnisins.

Staðsetning: Hrollaugsstaðir í Suðursveit
Tími: 17:00-19:00

Boðið verður upp á veitingar.


Hlekkur á Facebook viðburð