Fara í efni

Skemmtimót í Kvennablaki

Dags
26. september
Kl.
12:00 - 14:00
Staðsetning
Íþróttahúsið
Blakdeild Sindra stendur fyrir skemmtimóti í kvennablaki laugardaginn 26. september!
Deildu

Allar eru velkomnar, byrjendur jafnt sem reyndar blakkonur. Þú þarft ekki að mæta með lið, heldur skráir þú þig sem einstakling og dregið er í lið fyrir hvern leik.

Þátttökugjald er 2.500 kr. á mann og aðeins 28 pláss eru í boði. 

Hver leikur er 10 mínútur og spilaðir verða 6 leikir.

Skrá mig

Það stefnir í frábæran dag fullan af blaki, gleði og góðum félagsskap! Við byrjum daginn á því að hita upp með Zumba tíma undir stjórn okkar eigin Írisar 💃 Að upphitun lokinni tekur við skemmtimót þar sem verða verðlaun, glaðningar, snarl og nóg af fjöri!

Að móti loknu ætlum við að skella okkur saman í sund og njóta þess að slaka á eftir daginn. Frítt verður í sund í tilefni af Íþróttaviku Evrópu sem stendur yfir þessa vikuna. Happy Hydrate, Horn Brewery, Hótel Höfn, Pakkhús og Ljósdís kaffihús og bakarí hafa nú þegar stutt við mótið með glaðningum og vinningum og erum við afar þakklátar fyrir stuðninginn! ❤️ 

Við í stjórninni höfum lagt mikinn metnað í að skipuleggja þennan dag og vonumst til að sjá sem flestar! Endilega skráið ykkur og hvetjið vinkonur ykkar til að koma með! Aðeins 28 pláss í boði, svo tryggið ykkur sæti!