🎶 Söngleikjasprengja Leikfélags Hornafjarðar er fyrst og fremst vettvangur fyrir gleði, söng og skemmtun! Okkur langar að gefa okkar frábæra leikfélagsfólki tækifæri til að stíga á svið, láta ljós sitt skína og flytja skemmtileg lög úr söngleikjum við lifandi hljóðfæraundirleik.
Um er að ræða skemmtilegt tilraunaverkefni þar sem við sameinum tvennt sem okkur þykir einstaklega gaman: að koma fram og skemmta áhorfendum og ást okkar á söngleikjum og þeirri frábæru tónlist sem þeir hafa að geyma.
Hugmyndin kviknaði út frá löngun okkar til að gera eitthvað skemmtilegt saman, prófa nýja hluti og gefa fleiri félögum tækifæri til að koma fram í aðeins öðruvísi umhverfi en í hefðbundnum leiksýningum. Við vildum líka nýta tækifærið til að prófa þann frábæra tækjabúnað sem kominn er í húsið okkar, Sindrabæ, og kanna hvernig hann nýtist við tónleikahald og sýningar af þessu tagi.
Þetta er því líka ákveðin tilraunastofa fyrir okkur þar sem við fáum að læra, leika okkur og öðlast reynslu sem mun vonandi nýtast í framtíðarverkefnum leikfélagsins.
Markmiðið er þó umfram allt að hafa gaman! Að njóta þess að syngja, spila og koma fram saman, bjóða áhorfendum upp á skemmtilega kvöldstund og um leið safna smá pening í sjóð leikfélagsins til að styðja við áframhaldandi starfsemi þess. Við gerum þetta af gleði og áhuga, og vonum að þið takið vel í þessa tilraun okkar og komið til að njóta kvöldsins með okkur. Og hver veit nema Söngleikjasprengjan verði að einhverju sem við gerum aftur! 💥🎶
🎟️ Aðgangseyrir: 3.500 kr.
🕗 Húsið opnar: kl. 20:00
🎭 Sýningin hefst: kl. 21:00
🎤 Eftir sýningu: Opinn míkrófónn í karókí þar sem allir mega taka þátt og láta ljós sitt skína!
🕛 Húsið lokar: kl. 00:00
Við hlökkum til að sjá ykkur í Sindrabæ! ❤️
