Fara í efni

Sundlaugabíó í Sundlaug Hafnar!

Dags
28. ágúst
Kl.
19:00 - 21:00
Staðsetning
Sundlaug Hafnar
Föstudaginn 28. ágúst verður stórmyndin "Stella í Orlofi" sýnd í Sundlaug Hafnar, meðan gestir geta spókað sig ofan í bæði laug og pottum.
Deildu

Fyrir sýningu er gestum boðið upp á grillaðar pulsur, og eftir sýningu geta gestir fengið sér ís á Olís, með framvísun ís-miða sem gefnir verða í sundlauginni meðan á viðburðinum stendur. 

Byrjað verður að grilla klukkan 19:00 og kvikmyndin byrjar á slaginu 19:30. 

FRÍTT er á viðburðinn og hvetjum við sem flest til að mæta og eiga notalega og skemmtilega stund saman í Sundlaug Hafnar! 

Þessi viðburður er styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Viðburðurinn er hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. Fjölmenningarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar sóttu um styrkinn og eru samstarfsaðilar viðburðarins Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu og Sundlaug Hafnar.