Fara í efni

Tölum saman um líðan og tengsl

Dags
8. október
Kl.
19:30 - 21:00
Staðsetning
Nýheimar, Litlubrú 2
Barnaheill, Geðhjálp og Unnsteinn Manúel hitta ungmenni á Austfjörðum til að ræða líðan og tengsl  
Deildu

Barnaheill og Geðhjálp verða á ferð um Austurland með Unnsteini Manúel tónlistarmanni dagana 5. - 9. október að tala við ungmenni, forsjáraðila þeirra og forráðamenn sveitarfélaga um líðan og tengsl, það sem gott er í samfélaginu og það sem betur má fara.

Höfn í Hornafirði er síðasta stoppið á þessu ferðalagi og verður haldinn íbúafundar fimmtudaginn 8. október. 

Fyrst verður fundað með ungmennum í efstu bekkjum grunnskólans fyrr um daginn, unnið verður úr skilaboðum ungmennanna samdægurs og svo er blásið til opins íbúafundar með forsjáraðilum og ráðamönnum þá um kvöldið í Nýheimum á Höfn í Hornafirði fimmtudaginn 8. október kl. 19:30 til að ræða það sem unga fólkinu liggur mest á hjarta. 

Íbúafundurinn er opinn öllum, en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti. Forsjáraðilar, sveitarstjórnarfólk, starfsfólk í skóla- og frístundamálum, heilbrigðis- og velferðarþjónustu svæðisins og lögregla eru sérstaklega hvött til að mæta og taka þátt í samtalinu.  

Dagskrá

  • 19:30 – Barnaheill og Geðhjálp opna fundinn og kynna dagskrána.
  • 19:40 – Hópstjórar og/eða nemendur kynna niðurstöður hópavinnunnar.
  • 20:00 – Samtal um niðurstöður.
  • 20:20 – Jákvæð skilaboð fundarins – hvað er hægt að gera?
  • 20:45 – Örtónleikar með Unnsteini Manuel.
  • 21:00 – Fundi lýkur.

Með því að leggja saman krafta sína vilja Barnaheill og Geðhjálp nýta aðferðarfræði beggja félaga og skapa vettvang til að virkja samtal milli kynslóða um málefni sem standa ungmennum í byggðum landsins næst.