Fara í efni

Vígslumót Vísisvallar 2026

Dags
26. júní kl. 13:00 -
28. júní kl. 20:00
Staðsetning
Hrolllaugsstaðir í suðursveit
Nú styttist í stóru stundina! Um næstu helgi verður Vísisvöllur við Hrollaugsstaði í Suðursveit vígður með fjölbreyttri dagskrá og glæsilegu frjálsíþróttamóti þar sem keppendur víðs vegar af landinu mæta til leiks.
Deildu

📅 Föstudagur 26. júní – Alþjóðlegi Ólympíudagurinn
🕐 13:00–15:00

Í samstarfi við ÍSÍ verður boðið upp á skemmtilega dagskrá fyrir börn og ungmenni þar sem þátttakendur fá að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar, leiki og hreyfingu við allra hæfi. Hingað viljum við fá sem flest börn til að spreyta sig, við setjum engin mörk á aldursbilið en markhópurinn er 4–14 ára.

📅 Laugardagur 27. júní
🕙 10:00 Setningarathöfn
🕥 10:30 Keppni hefst

Við vígslu Vísisvallar munu meðal annars taka þátt Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar, ásamt fulltrúum úr stjórn ÍSÍ, UMFÍ, USÚ og Ungmennafélagsins Vísis.

Um kvöldið verður kvöldvaka og brekkusöngur þar sem keppendur, gestir og heimamenn geta komið saman og notið góðrar samveru.

📅 Sunnudagur 28. júní
🕥 10:30 Keppni hefst

Meðal keppenda verða nokkrir af fremstu frjálsíþróttamönnum landsins, þar á meðal Hera Christensen, núverandi Íslandsmethafi í kringlukasti kvenna. Þá verður spennandi að fylgjast með 60 m hlaupi karla þar sem möguleiki er á atlögu að Íslandsmeti.

Hoppukastali verður á svæðinu fyrir yngstu gestina alla helgina.
Kvenfélagið Ósk í Suðursveit verður með veitingasölu á mótssvæðinu þar sem boðið verður upp á grillaðar samlokur, kaffi, vöfflur og kökur.
Mótið er opið öllum!

Keppt verður í flokkum 9 ára og yngri, 10–11 ára, 12–13 ára, 14–15 ára og fullorðinsflokki.

Skráningarfrestur er til miðnættis 25. júní.

Skrá mig!

Við hlökkum til að taka á móti keppendum, gestum og heimafólki á Vísisvelli og eiga saman eftirminnilega helgi í Suðursveit!