Eins og áður hefur komið fram verður íbúakosning haldin dagana 5.–15. desember þar sem íbúar fá tækifæri til að taka afstöðu til þess hvort sveitarfélagið eigi að ganga til samnings við Landsbyggð hf. um fyrirhugaða uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn.
Svigrúm til breytinga í skipulagsferlinu
Ástæða þess að kosningin er ráðgefandi en ekki bindandi felst einkum í því að tillaga að deiliskipulagi hefur enn ekki farið í gegnum lögformlega málsmeðferð. Niðurstaða kosningarinnar mun ráða því hvort sveitarfélagið heldur áfram með verkefnið og setur af stað skipulagsferli á grundvelli fyrirliggjandi tillagna.
Í slíku ferli gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þær athugasemdir kunna að leiða til breytinga á einstökum þáttum verkefnisins.
Bindandi kosning á þessu stigi myndi takmarka svigrúm bæjarstjórnar til að bregðast við slíkum breytingum, þar sem niðurstaða bindandi íbúakosningar er samkvæmt sveitarstjórnarlögum bindandi til loka kjörtímabilsins.
Með því að hafa kosninguna ráðgefandi er því leitast við að tryggja íbúum skýrt tækifæri til að hafa áhrif á framhald verkefnisins, án þess að takmarka möguleika sveitarfélagsins til að taka tillit til athugasemda í lögbundnu skipulagsferli.
Meirihluti kjósenda ræður afstöðu bæjarstjórnar
Þrátt fyrir að kosningin sé ráðgefandi hefur bæjarstjórn tekið skýrt fram að vilji meirihluta þeirra sem greiða atkvæði verði virtur.
Kosningin snýst þannig um hvort íbúar vilji að sveitarfélagið gangi til samnings um fyrirhugaða uppbyggingu og haldi áfram með verkefnið á þeim grundvelli sem kynntur hefur verið.
Íbúar eru hvattir til að kynna sér fyrirliggjandi gögn og nýta kosningarétt sinn.
Nánari upplýsingar um dagsetningar, kjörstaði og framkvæmd kosningarinnar má finna í fyrri frétt sveitarfélagsins um íbúakosninguna.
Nánari upplýsingar um drög að samningi, deiliskipulagstillögu og önnur gögn sem varðar málið er að finna hér fyrir neðan:
