Fara í efni
Laus störf

Ritari á leikskólann Sjónarhól

Umsóknarfrestur: 05.10.2026
Sveitarfélagið Hornafjörður
Fullt starf

Leikskólinn Sjónarhóll leitar að jákvæðum, skipulögðum og þjónustuliprum einstaklingi í starf ritara á leikskóla. Við leitum að einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum, kann að halda utan um fjölbreytt verkefni og vill taka þátt í að skapa gott og hlýlegt starfsumhverfi fyrir börn, foreldra og starfsfólk.

Starfið er fjölbreytt og mikilvægt í daglegu starfi leikskólans. Ritari er oft fyrsti tengiliður foreldra, gesta og samstarfsfólks og gegnir lykilhlutverki í því að daglegt starf gangi vel fyrir sig.

Um starfið

Ritari leikskólans sinnir fjölbreyttum verkefnum sem styðja við stjórnendur, starfsfólk og daglegan rekstur skólans. Í starfinu reynir á góða samskiptahæfni, skipulag, nákvæmni og jákvætt viðmót. Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með fólki, leysa úr erindum og halda utan um mörg verkefni í einu.

Helstu verkefni

  • Sinna móttöku, símsvörun og almennri þjónustu við foreldra, starfsfólk, börn og gesti.
  • Miðla upplýsingum, svara erindum og halda utan um dagleg samskipti fyrir leikskólann.
  • Annast skjalavinnslu, heimasíðu, skráningar í gagnavinnslukerfi og varðveislu upplýsinga í samræmi við verklag og persónuvernd.
  • Uppfæra dagatöl, fréttir, upplýsingar og kynningarefni eftir þörfum.
  • Sinna innkaupum, vörumóttöku og birgðahaldi vegna daglegs rekstrar.
  • Fylgja eftir verkefnum tengdum húsnæði, viðhaldi, sameiginlegum rýmum og samskiptum við þjónustuaðila.
  • Taka þátt í utanumhaldi sem tengist öryggis-, heilbrigðis- og eldvarnamálum.
  • Styðja stjórnendur og starfsfólk við skipulag, fundi og önnur rekstrartengd verkefni.

Hæfni og reynsla

  • Góð samskipta- og þjónustuhæfni.
  • Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð tölvukunnáttu og hæfni til að vinna í upplýsingakerfum.
  • Ábyrgðarkennd og virðingu fyrir trúnaði.
  • Frumkvæði, jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni.
  • Framhaldsskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Reynsla af skrifstofu-, þjónustu- eða ritarastörfum er kostur.

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og lifandi starf í hlýlegu og jákvæðu starfsumhverfi.
  • Tækifæri til að hafa áhrif á daglegt skipulag og góða þjónustu leikskólans.
  • Samstarf við metnaðarfullt og samhent starfsfólk.
  • Heilsustyrk og aðgang að sundlaug.
  • Starf þar sem þjónustulund, skipulag og mannleg samskipti skipta miklu máli.

Um Leikskólann Sjónarhól

Leikskólinn Sjónarhóll er staðsettur á Höfn í Hornarfirði og er glæsilegur 8 deilda leikskóli með metnaðarfullu starfsfólki sem tekur vel á móti nýjum liðsmönnum. Sjónarhóll er heilsuleikskóli þar sem lögð er áhersla á útiveru, leik og að efla færni barna í öruggu og hvetjandi umhverfi.

Athygli er vakin á því að við ráðningu leikskólastarfsmanns er óskað eftir sakavottorði og að umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.hornafjordur.is.

Umsókn og nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um starfið veita Maríanna Jónsdóttir, Mariannaj@hornafjordur.is, og Elinborg Hallbjörnsdóttir, Elinborgh@hornafjordur.is.

Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 5. október næstkomandi.

Sækja um starf