Fara í efni

Menningarmiðstöð

Menningarmiðstöð Hornafjarðar og starfssvæði hennar er Sveitarfélagið Hornafjörður. Stofnunin varð til árið 1990 með sameiningu nokkurra safna. Heiti stofnunarinnar var upphaflega Sýslusafn Austur-Skaftafellssýslu en breyttist árið 2001 í Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Árið 2020 voru atvinnu- og ferðamál sameinuð Menningarmiðstöð Hornafjarðar og því er Menningarmiðstöðin orðin miðstöð menningar- atvinnu-, og ferðamála í sveitarfélaginu.

Starfandi einingar innan Menningarmiðstöðvarinnar eru:

  • Byggða-, sjóminja- og náttúrugripasafn
  • Listasafn
  • Bókasafn
  • Héraðsskjalasafn
  • Rannsóknarsvið
  • Gamlabúð

Atvinnu-, ferða- og rannsóknarsvið starfar jafnframt þvert á einingar Menningarmiðstöðvarinnar.

Áhersla er lögð á að varðveita, skrá og miðla menningararfi og sérstöðu Hornafjarðar. Starfið tekur einnig til rannsókna, fræðslu og þátttöku barna og ungmenna, auk nýsköpunar og þróunar atvinnulífs og ferðaþjónustu.

Sýningar eru opnar í bókasafninu, Verbúðinni í Miklagarði, Gömlubúð og Svavarssafni og er aðgangur ókeypis.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar stendur fyrir fjölbreyttu barna- og ungmennastarfi. Á sumrin er boðið upp á styttri ferðir þar sem börn kynnast nærumhverfinu á nýjan hátt, auk sumarlestrar bókasafnsins með hvatningarverðlaunum að hausti. Á bókasafninu eru barna- og unglingahorn og foreldrar hvattir til að koma þangað með börnum sínum. Menningarmiðstöðin tekur einnig reglulega á móti skólahópum, kynnir þeim listir og sögur og tekur þátt í ýmsum viðburðum í sveitarfélaginu.

Samfélagsmiðlar Menningarmiðstöðvarinnar á facebook eru:
Menningarmiðstöð Hornafjarðar,  Svavarssafn og Gamlabúð

Kristín Vala Þrastardóttir
Forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar