Fara í efni

Stjórnsýslu- og fjármálasvið

Stjórnsýslu- og fjármálasvið fer með miðlæga stjórnsýslu, fjármál og stoðþjónustu sveitarfélagsins

Skipurit Stjórnsýslu- og fjármálasviðs

Sviðið hefur umsjón með rekstri, áætlanagerð, fjármálastjórn, mannauðsmálum, gæðamálum, upplýsingatækni, skjalastjórnun, persónuvernd, kosningum, menningar-, atvinnu- og þróunarmálum auk almennrar þjónustu og upplýsingagjafar. Sviðið veitir jafnframt stjórnendum, kjörnum fulltrúum, stofnunum og öðrum sviðum ráðgjöf og stuðning um rekstur, faglega stjórnsýslu og samræmd verkferla.

Opna skipurit

Undir sviðið heyra meðal annars:

  • Gerð fjárhagsáætlana, langtímaáætlana, uppgjöra og ársreikninga
  • Fjárreiður, bókhald, launavinnsla, reikningsskil og greiðsla reikninga
  • Álagning skatta og gjalda, innheimta og umsjón með tekjum sveitarfélagsins
  • Eftirlit með fjármálum sveitarfélagsins og stofnana þess
  • Innkaup, samræming og miðlæg stýring
  • Daglegur rekstur Ráðhússins og almenn skrifstofustjórn
  • Framlínuþjónusta, símavarsla, upplýsingagjöf og almenn þjónusta við íbúa og starfsfólk
  • Stjórnsýslu-, gæða- og persónuverndarmál
  • Mannauðs- og launamál
  • Upplýsingatæknimál og tækniaðstoð til starfsmanna
  • Skjalastjórnun og skjalavarsla
  • Undirbúningur funda bæjarráðs og bæjarstjórnar
  • Umsjón með íbúaráðum og kosningum
  • Lögfræðimál, málarekstur og eftirfylgni samstarfssamninga
  • Menningar-, atvinnu-, markaðs-, þróunar- og nýsköpunarmál
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur, kjörna fulltrúa, önnur svið og stofnanir sveitarfélagsins