Velferðarsvið

Miðgarður
Mánudaga til fimmutdaga 9:00-12:00, 12:45-15:00 og föstudaga 09:00-13:00
Netfang: velferd@hornafjordur.is
Sími: 470 8011
Neyðarnúmer barnaverndarmála er 112
Netfang: barnavernd@hornafjordur.is
Ekran
Dagdvöl- og félagsstarf aldraðra.
Opið er frá kl.10-15 mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga og á miðvikudögum kl.10-16
Sími: 470 8011
Umsóknir um þjónustu velferðarsviðs eru í íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins.
Starfsemi
Starfsemi velferðarsviðs skiptist annars vegar í fjölskyldu- og félagsþjónustu og hins vegar stuðnings- og virkniþjónustu.
Fjölskyldu- og félagsþjónusta fer með málefni félagsþjónustu og barnaverndar og er hlutverk hennar að veita aðstoð og ráðgjöf.
Stuðnings- og virkniþjónusta fer með málefni er snúa annars vegar að virkniúrræðum og starfsendurhæfingu og hins vegar að þjónustunni heim.
Velferðarnefnd fer með stjórn og skipulag velferðarsviðs í umboði bæjarstjórnar, en framkvæmd þjónustunnar er í höndum starfsmanna. Áhersla er lögð á náið samstarf milli velferðarsviðs, heilsugæslu og þeirra sem vinna að fræðslumálum.

