Dagdvöl og félagsstarf fer fram í Miðgarði – Þjónustumiðstöð að Víkurbraut 24.
Þar fer fram stuðningur við virkni af ýmsu tagi og er matarþjónusta alla virka daga og á sunnudögum
Fatlað fólk

Við framkvæmd þjónustu við fatlað fólk skal virðing borin fyrir mannlegri reisn þess, sjálfræði og sjálfstæði.
Þjónustan heim
Sveitarfélagið Hornafjörður í samstarfi við HSU hefur samþætt heimaþjónustu og heimahjúkrun undir heitinu þjónustan heim.
Markmið þjónustunnar
- Að styðja notendur sem þurfa aðstoð vegna aðstæðna eða félagslegrar einangrunar.
- Að efla sjálfstæði og sjálfsbjargargetu notenda.
- Að virða sjálfsákvörðunarrétt hvers og eins.
- Að gera fólki kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður, eins lengi og hægt er.
- Að sníða þjónustuna að einstaklingsbundnum þörfum.
Sótt er um úrræði Þjónustunnar heim rafrænt á íbúagátt sveitarfélagsins. Frekari upplýsingar um úrræði Þjónustunnar heim veita starfsmenn stuðning- og virkniþjónustu í síma 470-8011 eða á netfanginu velferd@hornafjordur.is
Þjónustan heim felur í sér eftirfarandi þjónustuþætti
Boðið er upp á matarþjónustu í Miðgarði – Þjónustumiðstöð að Víkurbraut 24 samhliða dagvöl og félagsstarfi fatlaðra. Einnig er hægt að fá heimsendan mat ef viðkomandi kýs það frekar. Gjaldskrá er í samræmi við reglur sveitarfélagsins um félagslega heimaþjónustu og uppfærist um hver áramót.
Markmið heimaþjónustu er að efla notandann til sjálfsbjargar og sjálfræðis og gera honum kleift að búa sem lengst á eigin heimili við sem eðlilegastar aðstæður.
Við framkvæmd og skipulagningu þjónustunnar skal lögð áhersla á að sníða hana að þörfum notandans og virða sjálfsákvörðunarrétt hans.
Reglur
Gjaldskrá