Fara í efni

Bæjarstjóri

Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar er Hjalti Þór Vignisson. Hjalti er Hornfirðingur, fæddur á Höfn árið 1978 og uppalinn í Nesjum og á Mýrum.

Samhliða námi starfaði Hjalti við rannsóknir hjá Háskóla Íslands. Hann hóf síðar störf hjá Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem hann vann að stjórnsýslu- og menningarmálum áður en hann tók við starfi bæjarstjóra.

Undanfarin ár hefur Hjalti starfað í sjávarútvegi og útflutningi sjávarafurða. Hann starfaði meðal annars hjá Iceland Pelagic og Skinney-Þinganesi áður en hann tók við starfi framkvæmdastjóra Storma ehf. Þar hefur hann leitt uppbyggingu og rekstur fyrirtækisins, meðal annars með stofnun og rekstri dótturfélags í Frakklandi.

Hjalti hefur því víðtæka reynslu af sveitarstjórnarmálum, atvinnulífi og alþjóðlegum viðskiptum.

Staðgengill bæjarstjóra er Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, sími 470-8000 eða jonabenny@hornafjordur.is.

Það er hægt að hafa samband við Hjalta á netfangið hjalti@hornafjordur.is eða í síma 822-7950

Hjalti Þór Vignisson
Bæjarstjóri