Bæjarstjórn
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar er skipuð sjö bæjarfulltrúum sem kosnir eru hlutfallskosningu til fjögurra ára í senn. Bæjarstjórn kýs bæjarráð og aðrar nefndir, ræður bæjarstjóra, hefur yfirstjórn á fjárreiðum sveitarfélagsins og verklegum framkvæmdum og er í forsvari fyrir bæinn út á við. Þá setur bæjarstjórn reglur um stjórn og meðferð bæjarmálefna. Forseti bæjarstjórnar er Ingibjörg Sveinsdóttir.

Bæjarstjórnarkosningar voru 16. maí 2026. Bæjarfulltrúarnir sjö voru kjörnir af fjórum listum:
- B - Framsókn og stuðningsmenn 44,8% þrjá fulltrúa.
- D - Sjálfstæðisflokkurinn fékk 26% tvo fulltrúa.
- M - Miðflokkurinn fékk 15,8% einn fulltrúa.
- K - Kex framboðið fékk 13,5% einn fulltrúa.
Framsókn og stuðningsmenn og Sjálfstæðisflokkurin mynduðu meirihluta.
Fundir bæjarstjórnar eru haldnir 2. fimmtudag hvers mánaðar kl. 15:00 og eru aðgengilegir hér á heimasíðu sveitarfélagsins og á Youtube rás sveitarfélagsins
Eftirfarandi eru kjörnir fulltrúar 2026 - 2030.
- Hjalti Þór Vignisson aðalmaður (B)
- Björgvin Óskar Sigurjónsson aðalmaður (B)
- Ingibjörg Sveinsdóttir aðalmaður (B)
- Gauti Árnason aðalmaður (D)
- Hjördís Edda Olgeirsdóttir aðalmaður (D)
- Reynir Ásgeirsson aðalmaður (M)
- Eyrún Fríða Árnadóttir aðalmaður (K)