Stýrihópur um uppbyggingu nýrra íþróttamannvirkja
Stýrihópurinn heyrir undir bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
og verkefnastjóri uppbyggingar íþróttamannvirkja eru starfsmenn stýrihópsins og rita fundargerðir.
Ábyrgðarmaður hópsins er bæjarstjóri.

Hlutverk stýrihópsins er að leiða undirbúning, samræmingu og stefnumótun vegna uppbyggingar nýrra íþróttamannvirkja í Sveitarfélaginu Hornafirði og vera ráðgefandi gagnvart bæjarráði og bæjarstjórn um framkvæmd verkefnisins.
Í stýrihópnum sitja:
- Björgvin Óskar Sigurjónsson(B), formaður
- Hjördís Edda Olgeirsdóttir(D), varaformaður
- Eyrún Fríða Árnadóttir (K)
- Reynir Ásgeirsson (M)