Ungmennaráð
Ungmennaráð Sveitarfélags Hornafjarðar heyrir undir fræðslu- og tómstundanefnd. Tómstundafulltrúi er starfsmaður ungmennaráðs.
Hlutverk
Ungmennaráð Hornafjarðar skal gæta þess að leita eftir sem flestum sjónarmiðum ungs fólks í störfum sínum þannig að ályktanir þess og skoðanir endurspegli sem best almennan vilja ungs fólks í sveitarfélaginu. Ungmennaráð er skipað sjö fulltrúum á aldrinum 13–24 ára og þremur til vara. Fræðslu- og tómstundanefnd skipar í ráðið að fengnum tillögum frá Grunnskóla Hornafjarðar, Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, Ungmennafélaginu Sindra og Þrykkjuráði.
Í ungmennaráði sitja:
- Adam Bjarni Jónsson
- Theódór Árni Stefánsson
- Gerður Lilja Helgadóttir
- Daníel Elí Gíslason
- Freyja Dís Tjörvadóttir
- Áskell Vigfússon
- Sigurður Arnar Hjálmarsson
- Guðbjörg Dalía Björgvinsdóttir
- Vaka Sif Tjörvadóttir
- Anton Kristberg Sigurbjörnsson