Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 118
118. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi þriðjudaginn 9. nóv. 2004,
kl 16.10.
Mætt voru: Sigurbjörg Karlsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Björg Svavarsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri.
1. Einstaklingsmál, fært í trúnaðarbók.
2. Önnur mál
a) Lögð fram drög að endurskoðun á reglum um framkvæmd fjárhagsaðstoðar í Hornafirði.
b) Lagt fram til kynningar ný drög að endurskoðaðri lögreglusamþykkt fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð sem bæjarráð hefur vísað til umfjöllunar í félagsmálaráði.
Félagsmálaráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að lögreglusamþykkt en áréttar nauðsyn þess að þeir sem eiga að framfylgja
Lögreglusamþykkt sveitarfélagsins sinni því af kostgæfni.
Fundi slitið kl. 17:00


