Dagforeldrar

Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi, en Sveitarfélagið Hornafjörður sér um leyfisveitingar og sinnir lögbundnu eftirliti með starfseminni auk ráðgjafar til dagforeldra.

Í sveitarfélaginu er eitt dagforeldri starfandi, Birna Björg Sigurðardóttir, s. 478-1943. Tekur hún við börnum allt frá 6 mánaða aldri sé laust pláss. Sótt er um vistun milliliðalaust hjá dagforeldri.

Dagforeldri setur sér sína eigin gjaldskrá en sveitarfélagið niðurgreiðir vistunina sbr. reglur um niðurgreiðslur til dagforeldra. Niðurgreiðslur eru greiddar eftir að skrifað hefur verið undir samning um dvöl barns hjá dagforeldri og honum skilað inn til velferðarsviðs sveitarfélagsins að Víkurbraut 24.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá starfsmönnum velferðarsviðs í síma 470-8000 eða á netfangið velferd@hornafjordur.is