Félagsmálaráð
Fundargerð félagsmálaráðs 151
151. fundur
Fundur haldinn í félagsmálaráði Hornafjarðar í ráðhúsi miðvikudaginn 27.september 2006, kl 16.10.
Mætt voru: Björg Svavarsdóttir, Sigurbjörg Karlsdóttir, Margrét Jóhannesdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Jón Kristján Rögnvaldsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Einstaklingsmál, færð í trúnaðarbók.
2. Önnur mál
· Erindi Styrktarfélags Lamaðra og fatlaðra um framlag sveitarfélagsins tekið fyrir. Fallist á jákvæða úrlausn ef íbúum sveitarfélagsins er tryggð sumardvöl næsta sumar.
· Félagsmálaráð minnir atvinnurekendur á vinnutíma barna, félagsmálastjóra falið að setja auglýsingu á skjávarpið.
Fundi slitið kl. 17:25


