Fundargerð hafnarstjórnar 81
81. fundur
Fundur haldinn í hafnarstjórn Hornafjarðarhafnar í fundarsal ráðhúss föstudaginn 23. júní 2006, kl. 12:00.
Mætt voru: Reynir Arnarsson formaður, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Halldór Tjörvi Einarsson og Sigurður Ólafsson. Einnig Hjalti Þór Vignisson, Sigfús Harðarson og Vignir Júlíusson.
1. Dýpkun innan hafnar
Hafnarstjórn lýsir yfir óánægju með að skip frá Gáma- og tækjaleigunni hafi ekki enn komið og gert tilraunadælingu í höfninni. Kom fram að starfsmenn hafi átt samtal við Siglingastofnun þar sem komið hafi fram að von sé á skipi innan hálfs mánaðar. Kom fram að dælingarprammi hafnarinnar þarfnast orðið gagngerra endurbóta ef á að nota hann áfram. Hafnarstarfsmenn gerðu grein þörf á dýpkun innan hafnar
2. Bryggja á Austurfjörum
Hafnarstarfsmenn fóru yfir vinnu við dýpkun við nýja bryggju á Austurfjörum. Kom fram að dælt hafi verið a.m.k. 25 þúsund rúmmetrum. Þörf er á frekari dýpkun um 1000 rúmmetra að lágmarki.
3. Bátstangabryggja
Farið yfir dýptarmælingar við Bátstanga og kom fram að grynnkað hafi í höfninni frá því að dælingu lauk 1. apríl. Á svæðið hefur sest um 1-1,5 metri af seti á tæpum þremur mánuðum. Nú er unnið að frekari dýpkun með gröfu. Verkið er tveimur mánuðum á eftir áætlun. Hafnarstjórn mun taka málið aftur fyrir á næsta fundi.
4. Önnur mál
Spurst fyrir um hvenær von er á nýjum löndunarkrana. Kom fram að Framtak sé að gera kranann kláran og hyggst senda hann fljótlega. Ákveðið að Hafnarstjórn fundi í framtíðinni fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 17.00.
Fundi slitið kl. 12.50


