Fundargerð hafnarstjórnar 118
118. fundur
Fundur í hafnarstjórn Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi,miðvikudaginn 9. september 2009 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Valdemar Einarsson, Birgir Árnason, Sigurður Ægir Birgisson, Örn Arnarson, Árni Rúnar Þorvaldsson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 200908040 - Ástand bryggja
Hafnarstjórn fór í vettvangsferð um hafnarsvæðið í upphafi fundar. Ástand bryggja er almennt gott en lagfæringar eru nauðsynlegar á þekju Bræðslubryggju. Starfsmönnum falið að gera tillögu að úrbótum á Bræðslubryggju.
2. 200908041 - Umhverfi hafnarinnar
Hafnarstjórn fór í vettvangsferð til að skoða umhverfi hafnarinnar.
Starfsmönnum falið að gera tillögu og kostnaðaráætlun um frágang á svæðinu við nýja þekju á Álaugarey og svæðinu við Bræðslubryggju og Bátstangabryggju.
3. 200908042 - Hafnarvog - endurbætur og lagfæringar
Hafnarstjórn felur starfsmönnum að fá teikningar af svæðinu í kringum Hafnarvog með það fyrir augum að svæði fyrir stóra bíla sé nægjanlegt. Einnig að gera tillögu að úrbætum á húsnæði vogarinnar og etv. viðbyggingu ef á þarf að halda.
4. 200908043 - Vélbáturinn Axel
Farið yfir bréf lögmanns skipsins um kröfu hafnarinnar um björgunarlaun. Í kjölfar mikillar umræðu var samþykkt að ganga til samninga á þeim forsendum sem Reglua lögmannstofa leggur til.
5. 200908035 - Hafnafundur 2009 - boðun
Samþykkt að Hjalti Þór Vignisson og Reynir Arnarson verði fulltrúar á fundinum. Til vara Sigurður Ægir Birgisson og Birgir Árnason.
6. 200908046 - Sjóvörn milli Krosseyjar og Álaugareyjar - útboð
Lögð fram kostnaðaráætlun fyrir frágang á svæðinu. Hafnarstjórn er sammála um að bjóða verkið út.
7. 200705114 - Önnur mál
- Sigurður Ægir spurði um fjármuni sem ráðstafað var á sínum tíma um dýpkun á Grynnslunum. Hafnarstjóra falið að kanna málið.


