Hafnarstjórn
Fundargerð hafnarstjórnar 126
126. fundur
Fundur hafnarstjórnar Hornafjarðar haldinn í ráðhúsi, fimmtudaginn 26. ágúst 2010 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Reynir Arnarson, Sigurður Ægir Birgisson, Nína Sibyl Birgisdóttir, Valdemar Einarsson, Páll Ólafsson, Hjalti Þór Vignisson, Haukur Ingi Einarsson (HIE), Sigfús Harðarson,
Fundargerð ritaði: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri
Dagskrá:
1. 201008060 - Bryggja í Óslandi - útboðsgögn
Samþykkt að verklok skuli vera eigi síðar en 1. mars 2011. Mikilvægt er að þekjan verði ekki rifinn fyrr en áætlað er að ráðast í að smíða nýja.
Framlögð útboðsgögn samþykkt með áorðnum breytingum.
2. 200908043 - Björgun á Axel
Sigfús vék af fundi undir þessum lið.
Reynir gerði grein fyrir greiðslu björgunarlauna og sagði að tveir kostir væru í stöðunni, annars vegar að fara í málarekstur eða að greiða starfsmönnum hafnarinnar 40% af björgunarlaunum. Í umræðu kom fram hjá hafnarstjórnarmönnum að verri kostur væri að fara í málarekstur gagnvart starfsmönnum hafnarinnar en að halda sig við fyrri ákvörðun hafnarstjórnar.
Hafnarstjórn samþykkir að greiða starfsmönnum hafnarinnar 40% af björgunarlaunum og greiða björgunarbátasjóðnum styrk af því sem út af stendur. Bæjarstjóra falið að ganga til viðræðna við björgunarbátasjóð um styrk frá höfninni fyrir aðild að björgun Axels.
3. 201008061 - Dýpkun í höfninni 2010
Sigfús fór yfir mælingar frá því í júlí. Reynir greindi frá því að von er á sérfræðingum til Hornafjarðar á vegum Siglingastofnunar til að fara yfir dýpi í höfninni og Grynnslunum.
4. 201008035 - Samgönguáætlun 2011-2014
Rætt um þróun í útgerð á Hornafirði. Hafnarstjórn leggur áherslu á að staðaldri verði 8 metra dýpi á siglingaleið stóru skipanna í höfninni í stað 7,5 m og fyrir utan hafnarkjaftinn. Þá er mikilvægt að rýmka siglingaleiðina við Hellirinn og með dælingu á hluta leiðarinnar meðfram Austurfjörunni.
Reynir ræddi um fjárveitingar til bryggju við Hafnarvog sem væri til staðar á núgildandi samgönguáætlun. Sagði Reynir að hafnarstjórn þyrfti að taka afstöðu til þess hvort vilji væri til þess að nýta þá fjármuni.
Hafnarstjórn felur starfsmönnum að gera kostnaðaráætlun fyrir endurbótum á þessari bryggju og senda erindi um óskir til Siglingastofnunar.
5. 201008051 - Hafnasambandsþing 2010
Samþykkt að formaður hafnarstjórnar og hafnarstjóri fari á fundinn ásamt einum starfsmanni.
6. 200908041 - Umhverfi hafnarinnar
Lögð fram tillaga um aðgerðir til að bæta umhverfi hafnarinnar. Hafnarstjórn leggur mikla áherslu á að vinnuskóli sveitarfélagsins fari yfir hafnarsvæðið eins og önnur opin svæði. Kom fram að ásýndin hafi batnað mikið. Þá telur hafnarstjórn mikilvægt að þeir sem hafa geymslulóðir í Óslandi gangi frá þeim samkvæmt gildandi skilmálum. Einnig er mikilvægt að ráðast í endurbætur á götum á hafnarsvæðinu, t.d. á Ófeigstanganum.
Hafnarstjórn óskar eftir að fá kostnaðaráætlun fyrir grjótvörn frá smábátahöfn að Bátstangabryggju.
7. 201008059 - Viðhaldsáætlun fyrir Hornafjarðarhöfn
Starfsmönnum falið að gera áætlun um viðhald og endurbætur fyrir Höfnina. Mikilvægt er að unnið verði ítarleg áætlun þar sem fjárþörf fyrir næstu ár er sett fram.
8. 200705114 - Önnur mál
Farið yfir ósk um aðalskipulagsbreytingu á hafnarsvæðinu. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemdir við afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar um að vísa málinu til heildarendurskoðunar á aðalskipulagi sem stendur yfir.
Nína spurði um sorpmál í höfninni. Hafnarstjórn sammála um að taka málið fyrir á næsta fundi sem sér lið.
Hjalti gerði grein fyrir samskiptum um sjálfvirkni við vigtun.


