Fundargerð húsnæðisnefndar 60
60. fundur
Fundur haldinn í húsnæðisnefnd Hornafjarðar í fundarsal ráðhúss fimmtudaginn 19. október kl: 16:30.
Mætt voru: Kristín Gísladóttir, Örn Arnarson og Kristín G. Gestsdóttir. Einnig Ásta H. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
1. Úthlutun íbúða
Sandbakki 1 0203 100,1 fm. 3ja herb. Úthlutað sjá trúnaðarbók.
2. Átta mánaða uppgjör
Ásta kynnti átta mánaða uppgjör.
3. Umsóknir um viðbótarlán
Umsókn dags. 12. október 2004 um viðbótarlán að upphæð kr. 1.691.000.- Húsnæðisnefnd samþykkir með fyrirvara um samþykki Íbúðalánasjóðs.
4. Önnur mál
Ásta kynnti bréf Félagsmálaráðuneytisins dags. 12/10 2004 varðandi breytingu á lögum um húsnæðismál nr. 44/1998 þar sem lagt er til að lánshlutfall almennra íbúðalána hækki í 90% af kaupverði íbúðar. Samhliða gildistöku nýrra laga er gert ráð fyrir að hætt verði veitingu viðbótarlána til tekju og eignaminni einstaklingar.
Fundi slitið kl. 17:15


