Gamla - Menningarmálanefnd
Fundargerð menningarmálanefndar 67
67. fundur
Menningarmálanefnd Hornafjarðar 67. fundur
Fundur haldin í menningarmálanefnd í fundarsal Framhaldskólans þriðjudaginn 12. apríl kl. 16.00.
Mætt voru: Hermann Hansson, Þorbjörg Arnórsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Ágústína Halldórsdóttir og Guðlag Hestnes. Einnig: Hjalti Þór Vignisson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð síðasta fundar
Lögð fram fundargerð 66. fundar frá 9. mars til kynningar.
2. Uppgjör fyrir árið 2004
Lagt fram uppgjör fyrir árið 2004. Forstöðumaður gerði grein fyrir niðurstöðunni og útskýrði einstaka liði í uppgjörinu. Töluverð umræða skapaðist um uppgjörið og starfsmanni falið að skoða einstaka kostnaðarliði sem rætt var um á fundinum.
3. Kynning á umsækjendum um starf menningar- og upplýsingafulltrúa
Lagðar voru fram umsóknir til kynningar og umfjöllunar.
4. Samningur Menningarmiðstöðvar og FAS um menningu og afþreyingu ungs fólks
Lagt var fram uppkast að samningi sem fyrirhugað er að undirrita þann 16. apríl n.k. á kynningardegi FAS. Samningurinn felur í sér að FAS greiðir Menningarmiðstöðinni fyrir að styðja við frumkvæði og drifkraft nemenda FAS en jafnframt mun Menningarmiðstöð leitast við að ná til alls ungs fólks í héraðinu. Menningarmiðstöðin skuldbindur sig til að vinna að verkefnum sem tengjast afþreyingu og menningu ungs fólks. Aðkoma Menningarmiðstöðvar skal vera með þeim hætti að taka þátt í skipulagningu og aðstoða við fjármögnun einstakra verkefna og viðburða.
Forstöðumanni falið að undirrita samninginn.
5. Jöklasýning
Hermann gerði grein fyrir stöðu málsins, fjármögnun og næstu skrefum. Þá kynnti hann hugmyndir um opnunarhátíð á Jöklasýningu.
6. Ákvörðun um fund vegna stefnumótunar í menningarmálum
Ákveðið að boða til fundar um stefnumótun þann 11. maí. Samþykkt að stefna að fundi þann 25. maí í Hofgarði í Öræfum og koma við á Þórbergssetri og skoða fornleifauppgröft við Salthöfða.
7. Önnur mál
- Guðlaug gerði heimsókn Kammersveitar Reykjavíkur að umtalsefni. Kom fram hjá meðlimum Kammersveitarinnar að aðstaða í Nýheimum hafi verið afar góð.
- Þorbjörg ræddi framlag Einars Braga til fræðavinnu og söguritunar í héraðinu og mikilvægt væri að halda minningu hans á lofti.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18.00


