Fundargerð menningarmálanefndar 81
81. fundur
Fundur haldinn í menningarmálanefnd miðvikudagurinn 11. október 2006 kl. 16:00 í Nýheimum.
Mætt voru: Hermann Hansson formaður, Guðrún Ingimundardóttir, Ingvar Þórðarson, Gauti Árnason og Guðlaug Hestnes.
Einnig: Björg Erlingsdóttir.
1. Fundargerð síðasta fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Dagbók vetrarins 2006-2007
Farið yfir dagskrá. Breytingar gerðar og stungið uppá heimsóknum frá / til sveitarfélögum nágrannasveitarfélaga. Björgu falið að kanna áhuga hlutaðeigandi aðila á því hvort áhugi sé á samskiptum og samstarfi milli þessara aðila. Einnig rætt um heimsókn frá fulltrúa Menningarráðs Austurlands og kynningu á starfsemi ráðsins fyrir nefndarmönnum. Gauti biður um greinargerðir og kynningar á þeim málþingum og ráðstefnum sem fulltrúar menningarmálanefndar sækja. Dagskrá annars samþykkt.
3. Stefnumótun í menningarmálum
Tímaáætlun lögð fram. Hermann leggur til að fundur helgaður stefnumótun verði hafður á öðrum tíma en föstum fundartíma nefndarinnar. Ákveðið að hafa fund 3. nóvember klukkan 13:00-18:00 í Pakkhúsinu, nefndarmenn, varamenn og starfsfólk. Fyrri stefnumótun verður send út til aðal og varamanna ásamt þeim gögnum sem lögð hafi veri fram í þessari vinnu með fundarboði. Óskað eftir að starfsmenn Jöklasýningar kanni aðgangseyri á öðrum sýningum sambærilegum Jöklasýningu.
4. Aðsóknartölur safna
Tölur um aðsóknir safnanna kynntar.
5. Málefni Þórbergsseturs – Erindi frá Bæjarráði – skipun í stjórn Þórbergsseturs
Menningarmálanefnd tekur undir ályktun Bæjarráðs vegna Þórbergsseturs. Björg Erlingsdóttir tilnefnd sem fulltrúi í stjórn Þórbergsseturs.
6. Umsókn um lóð – Erindi frá Bæjarráði – óskað umsagnar.
Menningarmálanefnd leggst eindregið geng því að þessari lóð verði úthlutað. Menningarmálanefnd vísar ennfremur til umsagnar Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar vegna tófta við Heppuveg. 4
7. Boð um kaup á málverkum eftir Bjarna Henriksson – Erindi frá Bæjarráði – óskað umsagnar.
Áður en til umsagnar kom var erindið afturkallað.
8. Önnur mál
Opnunartími bókasafnsins kynntur. Opið verður mánudaga – miðvikudaga 9-17, fimmtudaga 9-19 og föstudaga 11-17
Opnunartími bókasafnsins í Suðursveit kynntur. Opið verður annan hvern miðvikudag 4 tíma í senn, breyting á opnunartíma er í samráði við starfmann bókasafnsins í Suðursveit.
Samráðsfundur Safnaráðs um menntastefnu safna verður í Reykjavík 19. og 20. október, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar sækir fundinn.
Ákveðið að umræða um 110 ára afmæli Hafnar verði tekin fyrir á fundi nefndarinnar 8. nóvember.
Listvinasjóður; Guðlaug spurði um stöðu sjóðsins og hvort árgjöld ársins 2005 séu komin, hvort búið sé að rukka fyrir 2006. Uppgjör lagt fyrir á næsta fundi.
Guðlaug spurði um tekjur af auglýsingum á vatnstanki. Upplýsingar lagðar fyrir á næsta fundi.
Öryggismál safnanna, nefndarmönnum brá við það ástand sem þar er og forstöðumaður Menningarmiðstöðvar beðinn um að ganga eftir því að þessu verði kippt í liðinn.
Fyrirspurn um safn Sverris Scheving Thorsteinssonar.
Gauti spyrst fyrir um aðgengi fatlaðra að söfnum sveitarfélagsins og bendir á nauðsyn þess að aðgengi að söfnum sé fyrir alla. Bókað að þessi umræða þurfi að fara fram í nefndum sveitarfélagsins.
9. Vettvangsferð: Jöklasýning
Fundi slitið kl. 18:30


