Fundargerð Skólanefndar
41. fundur
Fundur haldinn í ráðhúsinu, miðvikudaginn 26. júní 2002 kl. 16.10
Mætt voru: Sigríður Kristinsdóttir, Bryndís Hólmarsdóttir, Þóra V. Jónsdóttir, Aðalheiður Björnsdóttir, Valdís Kjartansdóttir, Arnbjörg Stefáns-dóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Kosningar
Greint frá að bæjarráð hafi kosið Sigríði Kristinsdóttur sem formann nýkjörinnar skólanefndar og Bryndísi Hólmarsdóttur varaformann.
2. Nefndarmönnum afhent kjörbréf
3. Ákvörðun um skóladagatal
Lagt fram bréf, dags. 18. júní 2002, sem Arnbjörg Stefánsdóttir undirritar fyrir hönd skólastjórnenda í Hafnar-, Heppu- og Nesjaskóla. Lagt er til að áður tilkynntri skólabyrjun verði breytt þannig að fyrsti skóladagur í fyrrgreindum skólum verði 26. ágúst í stað 21. ágúst.
Skólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti þessar breytingar og leggur áherslu á að náð verði 170 lögbundnum kennsludögum auk 10 annarra skóladaga samkvæmt gildandi kjarasamningum. Einnig er samþykkt að stefna að skólaslitum föstudaginn 30. maí.
Í sama bréfi er einnig fjallað um leiðsagnartíma fyrir leiðbeinendur og styrk til leiðbeinenda í fjarnámi. Skólanefnd tekur ekki afstöðu til þeirra mála á þessum fundi.
4. Önnur mál
· Nefndarmenn undirrituðu yfirlýsingu um þagnarskyldu.
· Handmenntagreinar í Vöruhúsi KASK, kynnt drög tæknideildar að teikningum.
· Samþykkt að fundartími nefndarinnar verði kl.17:10, 3ja miðvikudag.
· Valdís spurði um matarkostnað þegar börn í leikskólum í fríum. Stefán greindi frá því að þá þurfi að breyta reglum fyrir leikskóla. Samþykkt að taka þetta mál upp í haust.
Fundi slitið kl. 17:35


