Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skólanefndar 81

81. fundur

 

Fundur haldinn       í ráðhúsinu, fimmtudaginn 27. apríl 2006 kl. 16:10

Mætt voru:  Sigríður Kristinsdóttir,Elín Magnúsdóttir,  Valdís Kjartansdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Snorri Aðalsteinsson,  Matthildur Ásmundardóttir, Rósa Valdimarsdóttir, Guðlaug Úlfarsdóttir, Guðmundur Ingi Sigbjörnsson,  Eygló Illugadóttir, Stefán Ólafsson.    

Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:

 1.      Fundargerð 80. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

 2.      Bréf foreldrafélagsins Krakkahóla

Á 332. fundi bæjarráðs var málinu vísað til skólanefndar. Formaður fór yfir bréfið en í því er fjallað um fjögur mál, gjaldfrjálsan leikskóla, garða leikskólanna, sumarlokanir og fjölgun fagmenntaðra leikskólakennara í leikskólum.

„Bókun leikskólastjóra Krakkakots og Lönguhóla:

Gjaldfrjáls leikskóli: Stjórnendur leikskólans taka undir að ekki hefur verið mikil umfjöllun um gjaldfrjálsan leikskóla i sveitarfélaginu og þykir það miður. Við myndum að sjálfsögðu fagna hverju skerfi í þá átt þar sem það yrði ekki bara góð kjarabót fyrir barnafjölskyldur heldur einnig góð “auglýsing” út á við og jákvætt skref í þá átt að fá fleira fólk til að flytja hingað. Auk þess jafnar það möguleika allra barna á leikskólagöngu.

Garðar leikskólanna: Þetta er ekki nýtt vandamál og að sjálfsögðu er löngu kominn tími á að klára þetta. Ef koma á í veg fyrir myndun pollsins stóra þá þarf að bretta upp ermar og gera það að alvöru en ekki bara að setja plástur á sárið. Þetta eru miklu stærri framkvæmdir en það að plástur haldi.

Sumarlokanir: Þrenn rök liggja til grundvallar:

a) Fjárhagsleg – það er ódýrara fyrir sveitarfélagið að loka í fjórar vikur því það kostar ekki jafn miklar afleysingar.

b) Stjórnunarleg – það kostar minna skipulag vegna sumarleyfa starfsmanna og barna.

c)  Fagleg – það eru skýr lok og upphaf á skólaárinu og meiri festa í starfseminni – börnin geta gengið að félögum sínum og kennurum.

4 vikna samfellt sumarfrí markar ákveðinn endi skólaársins og upphaf nýs. Reynsla leikskólanna í gegnum árin sýnir að langstærsti hluti foreldra fer í sumarfrí á tímabilinu frá miðjum júlí og fram í miðjan ágúst. Fyrir nokkrum árum var gerð könnun hjá foreldrum á Lönguhólum sem sýndi afgerandi niðurstöður í þessa átt. Mjög lítill hópur fólks er að fara í sumarfrí í maí, júní eða seinni hluta ágústmánaðar. Þegar barn byrjar í leikskóla er foreldrum strax gerð grein fyrir því hvenær sumarfríið er og geta þeir því gengið út frá því. Það er mikilvægt að hvert barn fái a.m.k. 4 vikna samfellt sumarfrí og auðvitað er best ef það getur varið því með foreldrum sínum.”

Einnig greindi Snæfríður frá þeim tilraunum sem gerðar hafa verið til að fá hingað menntaða leikskólakennara og hvatningu til starfsmanna leikskólanna um að fara í réttindanám. Upplýsti hún að fjórir starfsmenn í Krakkakoti séu í fjarnámi í leikskólafræðum.

Matthildur, fulltrúi foreldrafélagsins,  taldi að bjóða þurfi meira val um sumarlokun en lagði áherslu á að hvert barn fengi 4 vikna samfellt frí.

Skólanefnd tekur undir að skoða þurfi hugmyndir um gjaldfrjálsan leikskóla. Skólanefnd leggur áherslu á að unnin verði framkvæmdaáætlun um endurbætur og endurnýjun á lóðum og leiktækjum og að framkvæmdir hefjist strax  á lokunartíma leikskólanna í sumar. Skólanefnd tekur undir sjónarmið leikskólastjóranna um að sumarlokun eigi að vera samfelldar fjórar vikur á þeim tíma sem nú er.

 3.      Skóladagatal 2006 - 2007

Skóladagatal Nesjaskóla, Hafnarskóla og Heppuskóla lagt fram til samþykktar. Samkvæmt því yrði skólasetning þann 21. ágúst næstkomandi og skólaslit 4. júní 2007. Fyrir og eftir þessar dagsetningar kæmu starfsdagar kennara.

Skólanefnd samþykkir fram lagt skóladagatal fyrir þessa skóla.

 4.      Umsókn Hafnarskóla um aðstoðarkennara og stuðningsfulltrúa

Sótt er um að haldið verði áfram með sama skipulag og verið hefur undanfarin tvö ár, þ.e. að ráða tvo aðstoðarkennara og einn stuðningsfulltrúa. Stjórnendur skólans telja mjög góða reynslu vera af þessu fyrirkomulagi. Það auðveldi mjög þá þróun sem hafin er í átt að einstaklingsmiðuðu námi og dragi stórlega úr kostnaði við forfallakennslu en 4/5 af þeirri kennslu er sinnt af aðstoðarkennurum.  Samþykkt að mæla með þessari umsókn skólans.

 5.      Frumkvöðlanámskeið fyrir nemendur í Heppuskóla

Guðmundur gerði grein fyrir hugmyndinni sem gengur út á það að halda þriggja daga námskeið fyrir allt að 20 nemendur skólans. Farið yrði með þá í vinnu- og þjálfunarbúðir og er meðal annars horft til Hrollaugsstaða í því sambandi. Aðalkennari á námskeiðinu yrði G. Ágúst Pétursson sem hefur mikla reynslu á þessu sviði. Gert er ráð fyrir að greiðslur til námskeiðshaldara yrðu kr. 350.000.-  og við það bættist launakostnaður vegna eins starfsmanns skólans.  Sótt hefur verið um styrk til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands sem ekki hefur enn verið afgreitt af hálfu sjóðsins.

Skólanefnd mælir með að stefnt verði að þessu frumkvöðlanámskeiði.

 6.      Önnur mál

·        Guðmundur dreifði drögum að skipulagi yfir nám nemenda í 10. bekk að loknum samræmdum prófum í vor. (Snorri mætti á fund)

·        Íslensku menntaverðlaunin, stofnuð af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni. Verðlaun þessi voru fyrst veitt á síðasta ári. Í ávarpi forseta í meðfylgjandi kynningarbæklingi segir meðal annars: „Þegar ég ákvað að stofna Íslensku menntaverðlaunin var það von mín að þau stuðluðu að samstöðu um skólastarfið og yrðu lóð á vogarskálar til þess að framlag kennara yrði metið að verðleikum.”  Í ávarpi formanns Sambands íslenskara sparisjóða, bakhjarls  Íslensku menntaverðlaunanna, segir meðala annars: „Verðlaunin eru jafnframt kærkomin hvatning til kennara og skólastjórnenda til að halda áfram þróun og uppbyggingu grunnskólamenntunar þeirrar kynslóðar sem er að erfa landið.” Óskað er eftir að þessi verðlaun verði kynnt fyrir skólanefndum, foreldraráðum, foreldrafélögum, sveitarstjórnum, nemendum og foreldrum.

·        Afhent grein úr tímaritinu Glæðum eftir Rúnar Sigþórsson og fjallar hún um samræmd próf.

·        Kynntur bæklingur Heppuskóla, „Hugmyndir og skipulag vegna undirbúnings samræmdra prófa”.

 

 

 

Fundi slitið kl. 17:45

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 




Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica