Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð skólanefndar 108
108. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 22. október 2008 kl. 16:10 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Guðrún Jónsdóttir formaður, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Anna María Ríkharðsdóttir, Steinarr Bjarni Guðmundsson, Haukur Þorvaldsson, Þorvaldur J. Viktorsson og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 107. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Reglur um íþrótta- og tómstundakort
Farið yfir drög að reglugerð, dags. okt. 2008. Haukur greindi einnig frá fyrirkomulagi þessara greiðslna í Árborg, á Fljótsdalshéraði og Norðurþingi. Bent á að rétt sé að sleppa 5. atriði í kaflanum „skilyrði fyrir veitingu styrkja” og einnig upptalningu í niðurlagi reglnanna. Gerð athugasemd við 6. lið „reglur um notkun styrkja”, spurning hvort ekki sé rétt að sleppa þeim lið sem og þremur síðustu liðum sama kafla. Þá var sett spurning um ákvæðið „undir leiðsögn viðurkenndra þjálfara”, 5. liður sama kafla. Velt upp hugmynd hvort ekki sé rétt að miða greiðslurnar við skólaárið fremur almanaksárið og að tvískipta greiðslum. Haukur lagði til að að endurskoðunarákvæði verði sett í reglurnar og var undir það tekið af hluta skólanefndar. Skólanefnd leggur til að einnig verði greitt með börnum yngri en 6 ára. Skólanefnd óskar eftir að taka reglurnar aftur til umfjöllunar eftir endurskoðun starfsmanna í samræmi við fram komnar ábendingar.
(Haukur vék af fundi eftir þennan dagskrárlið.)
3. Reglugerð um Námsgagnasjóð og úthlutun úr honum
Farið yfir útsend gögn. Fram koma að grunnskólar sveitarfélagsins fá úthlutað samtals kr. 780.987.- árið 2008.
4. Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember 2008
16. nóvember ár hvert er haldinn dagur íslenskrar tungu á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Eru skólar sveitarfélagsins hvattir til að leggja sérstaka áherslu á íslenskuna á þessari árlegu hátíð móðurmálsins.
5. Fundargerðir starfshóps – breytingar á Grunnskóla Hornafjarðar
Farið yfir fundargerðir 1 – 4. Eftirfarandi kemur m.a. fram í fundargerð 4. fundar: „Starfshópurinn er sammála um að stefnt verði að flutningi 1. – 3. bekkjar á næsta skólaári. Ekki verði unnt að flytja þennan hluta grunnskólans nema að nauðsynlegum framkvæmdum við allt skólahúsnæði, Hafnarskóla, Heppuskóla, í Sindrabæ og á skólalóðum verði lokið þannig að allt verði tilbúið fyrir kennslu skólaárið 2009 – 2010.” Skólanefnd tekur undir þessa bókun starfshópsins.
6. Önnur mál
Engin önnur mál fram borin.
Fundi slitið kl. 17:35


