Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd
Fundargerð Skólanefndar 112
112. fundur
Fundur haldinn í skólanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 25. febrúar 2009 kl. 17:00 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Elín Magnúsdóttir formaður, Gísli Már Vilhjálmsson, Sigríður Kristinsdóttir, Torfi Friðfinnsson, Þorvaldur J. Viktorsson, Sædís Guðmundsdóttir, Guðrún Ingólfsdóttir, Snæfríður Svavarsdóttir, Maríanna Jónsdóttir og Stefán Ólafsson.
Gengið var til dagskrár og eftirfarandi tekið fyrir:
1. Fundargerð 111. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Könnun á afstöðu foreldra til sumarlokunar leikskóla og ákvörðun um lokunartíma leikskólanna
Farið yfir niðurstöður könnunarinnar. Af þeim foreldrum sem eiga börn í leikskóla svöruðu 67%. Niðurstöður könnunarinnar eru með neðangreindum hætti:
A) Hvert eftirtalinna 4 vikna tímabila finnst þér henta best til árlegrar sumarlokunar leikskólanna?
Merktu aðeins við einn möguleika.
Miðað við þá sem afstöðu tóku til þessarar spurningar:
8,5% Fjórar vikur, allar teknar í júlí.
36,2% Fjórar vikur, þrjár teknar í júlí og ein í ágúst.
48,9% Fjórar vikur, tvær teknar í júlí og tvær í ágúst.
6,4% Fjórar vikur, ein tekin í júlí og þrjár í ágúst.
Miðað við alla sem svöruðu könnuninni:
7,1% Fjórar vikur, allar teknar í júlí.
30,4% Fjórar vikur, þrjár teknar í júlí og ein í ágúst.
41,1% Fjórar vikur, tvær teknar í júlí og tvær í ágúst.
5,4% Fjórar vikur, ein tekin í júlí og þrjár í ágúst.
16,1% Svöruðu ekki spurningunni.
B) Báðir leikskólarnir hafa lokað á sama tíma ár hvert. Leitað er eftir hver afstaða þín sé til þess að leikskólarnir verði með sumarlokun á mismunandi tímum með þeirri skörun að annar leikskólinn loki/opni hálfum mánuði fyrr en hinn. Þannig hefðist til dæmis sumarlokun í Krakkakoti hálfum mánuði fyrr í ár og jafnframt opnaði hann aftur hálfum mánuði fyrr. Næsta ár breyttist röðin þannig að Lönguhólar lokuðu á undan og svo koll af kolli.
Merktu við þann möguleika sem þér finnst best eiga við:
20,0% Þetta fyrirkomulag hentar minni fjölskyldu vel.
65,5% Þetta fyrirkomulag skiptir mína fjölskyldu engu máli.
14,5% Ég leggst gegn þessu fyrirkomulagi.
C) Nú er almennt álitið að leikskólabörn eigi að hafa samfellt frí frá sínum skóla í nokkrar vikur eins og önnur skólabörn.
Merktu við annan eftirtalinna möguleika:
57,1%Ég vil ráða hvenær mitt barn/mín börn taka 4 vikna leyfi að sumri frá skóla.
42,9% Ég vil að það/þau taki sitt 4 vikna leyfi að sumri á sama tíma og önnur leikskólabörn.
Auk framangreinds gafst svarendum tækifæri til skriflegra athugasemda í könnuninni. Þar kom m.a. fram vilji til þess hjá nokkrum svarendum að leikskólar lokuðu í tvær vikur þó að börn tækju 4 vikna sumarfrí og aðrir kölluðu eftir auknum sveigjanleika hvað varðar sumarlokun. Þá greindi starfsmaður frá upplýsingum um sumarlokun í leikskólum í 14 sveitarfélögum þar sem sum hver hafa verið með 2 vikna sumarlokun en eru nú að auka hana í 4 vikur.
Torfi taldi að miðað við það sem fram kemur í könnuninni væri fólk almennt sátt við lokun leikskóla á þann hátt sem nú er gert.
Sigríður tók undir að almenn sátt væri við lokun en taldi að skipt gæti máli að lokunartími gæti skarast um 2 vikur.
Elín sagðist hafa vænst þess að fleiri svöruðu könnuninni. Þá fannst henni sérstakt að framkvæmdaráð HSSA skyldi ekki funda með starfsmönnum og kanna hug starfsfólks og þörf áður en bréf ráðsins sem tekið var fyrir á síðasta fundi var sent. Hún taldi að niðurstöður könnunarinnar gæfu ekki tilefni til breytinga frá því sem nú er. Þá varaði hún við að skólanefnd legði til tillögu sem fæli í sér aukin útgjöld. Torfi tók undir orð Elínar.
Sigríður lagði til að skólarnir loki báðir í 4 vikur með skörun um 2 – 3 vikur. Tillagan borin undir atkvæði. 1 nefndarmaður greiddi tillögunni atkvæði 3 á móti.
Skólanefnd samþykkir með 3 greiddum atkvæðum að sumarlokun leikskólanna verði með óbreyttum hætti. Sigríður sat hjá.
(Snæfríður og Guðrún viku af fundi að loknum þessum lið)
3. Endurskoðun á skólastefnu
Formaður skólanefndar leggur til að á milli nefndarfunda fari skólanefndarmenn yfir skólastefnuna og ný lög um leik- og grunnskóla. Í framhaldi af því verði tekin ákvörðun um hvort ný lög sem og breytingar á skólum kalli á einhverjar breytingar á skólastefnu.
4. Reglugerð um skólaráð við grunnskóla
Farið yfir reglugerðina og jafnframt greint frá erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem fram kemur að hvorki reglugerðin né grunnskólalögin kveði á um greiðslur/þóknanir til þeirra sem sitja í skólaráði grunnskóla. Því sé ekki sé skylt að greiða fyrir setu í skólaráði þó sveitastjórn sé heimilt að ákveða slíka þóknun, samkvæmt upplýsingum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Var nokkur umræða um hvort greiða ætti fyrir setu í skólaráði eða ekki og voru um það skiptar skoðanir.
5. Tilkynning menntamálaráðuneytis um úttekt á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla
Þorvaldur og Stefán greindu frá vinnu við þessa úttekt.
6. Önnur mál
· Stefán greindi frá námskeiði um athyglisbrest og ofvirkni ( ADHD) sem haldið er fyrir starfsmenn grunnskólanna 23. og 27. febrúar. Sagði hann mikla ánægju með þann hluta námskeiðsins sem lokið er.
· Rætt um útboð og tilboð vegna framkvæmda við Grunnskóla Hornafjarðar.
Fundi slitið kl. 18:30


