Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
6. fundur
Fundur haldinní skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 8. desember 2010 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.
Mætt voru: Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Grétar Þorkelsson, Styrgerður Jóhannsdóttir, Haukur Þorvaldsson, Snæfríður Svavarsdóttir, Hólmfríður Þrúðmarsdóttir og Stefán Ólafsson.
1. Fundargerð 5. fundar
Engar athugasemdir gerðar.
2. Tillaga að gjaldskrá sundlaugar
Haukur fór yfir gjaldskrá sundlaugar og tillögur að nýrri gjaldskrá.
Gjaldskrá 2010 Tillaga að gjaldskrá 2011
Stakir tímar - fullorðnir 425 kr. 450 kr.
Stakir tímar - börn 170 kr. 180 kr.
15 miða kort - fullorðnir 3.500 kr. 3.850 kr.
15 miða kort - börn 1.500 kr. 1.500 kr.
Árskort - fullorðnir 25.000 kr. 27.500 kr.
Árskort - börn 10.150 kr. 10.150 kr.
Leiga á handklæðum 330 kr. 350 kr.
Leiga á sundfötum 330 kr. 350 kr.
Sturtugjald - fullorðnir 300 kr. 330 kr.
Sturtugjald - börn 150 kr. 150 kr.
Skólanefnd samþykkir samhljóða framangreinda tillögu um hækkun á gjaldskrá sundlaugar fyrir árið 2011. Jafnframt var samþykkt að eldri borgarar og öryrkjar með lögheimili í sveitarfélaginu fái áfram frítt í sund. Einnig samþykkt að börn með lögheimili í sveitarfélaginu að tíu ára aldri fái frítt í sund, rökstutt með nýjum reglum um sundstaði sem heimila þeim börnum ekki aða fara ein í sund.
3. Fjárhagsáætlun 2011
Farið yfir fjárhagsramma stofnana sem heyra undir fræðslumál og æskulýðsmál.
Rætt um breytingar á deildarstjórastöðu við Grunnskóla Hornafjarðar en skólastjórar leggja áherslu á að vera með tvo deildarstjóra, þ.e. einn á yngra stigi og einn á eldra stigi. Telja skólastjórar þetta ekki hafa í för með sér mikinn viðbótarkostnað. Rætt um mjólk sem nú er veitt ókeypis til nemenda í Grunnskóla Hornafjarðar. Lögð hefur verið á það áhersla í skólanum að auka vatnsdrykkju og minnka mjólkurdrykkju.
Borin upp tillaga að gjaldskrá fyrir síðdegishressingu í lengdri viðveru verði í samræmi við innkaupsverð á þeirri matvöru sem neytt er. Matur fyrir nemendur leikskóla hækki um 5% sem stafar af hækkandi hráefnisverði og að hádegismatur fyrir nemendur Grunnskóla Hornafjarðar hækki úr 250 kr. hver máltíð í 260 kr. Breytingar þessar taki gildi frá 1. janúar 2011. Samþykkt með þremur greiddum atkvæðum, tveir sátu hjá.
4. Aðalnámskrá leikskóla og grunnskóla
Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur sent frá sér til umsagnar drög að námskrám fyrir leikskóla og grunnskóla auk sameiginlegs hluta aðalnámskrá fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Skólanefnd gerir engar efnislegar athugasemdir við drögin en lýsir yfir ánægju sinni með það sem fram kemur í námskránum. (Snæfríður, Haukur og Grétar viku af fundi.)
5. Innra mat grunnskóla
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út leiðarvísi fyrir skólanefndir, Innra mat grunnskóla, sem nýtist nefndunum við að sannreyna að innra mat skólans sé framkvæmt á viðunandi hátt og að niðurstöður þess séu nýttar til umbóta. (Til kynningar.)
6. Yfirlit yfir skyldur og ábyrgð skólanefnda samkvæmt lögum um grunnskóla
Ritið er gefið út af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Ritinu er ætlað að draga fram ábyrgð og skyldur sem sveitarfélög og skólanefndir bera samkvæmt nýjum lögum um grunnskóla í þeim tilgangi að efla skólanefndir í hlutverki sínu. (Til kynningar.)
7. Niðurstöður samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk 2010
Fram kemur í yfirliti frá Námsmatsstofnun að nemendur í Sveitarfélaginu Hornafirði eru undir landsmeðaltali í samræmdum könnunarprófum haustið 2010. Einnig var farið yfir meðaltöl áranna 2007 – 2009 sem sýna ívið betri árangur sum árin en önnur svipaðan árangur og 2010. Þórgunnur lagði áherslu á að efla þurfi innra starfið í skólanum, mikil orka og tími hafi farið í breytingar sem gerðar hafa verið á Grunnskóla Hornafjarðar.
8. Skemmtanir fyrir unglinga undir lögaldri á vínveitingastöðum, vísað til nefndarinnar af bæjarráði
Farið yfir ályktun SAMAN-hópsins vegna skemmtana fyrir unglinga undir lögaldri á vínveitingastöðum. Fram kemur að „SAMAN-hópurinn lýsir yfir áhyggjum af endurteknum unglingaskemmtunum á vegum einkaaðila fyrir börn undir lögaldri á vínveitingahúsum og vill hvetja forsvarsmenn sveitarfélaga til að móta sér stefnu í slíkum málum.“
Fram kom að slíkar samkomur séu ekki algengar hér og bent á að hér er til staðar húsnæði sem ekki er með vínveitingaleyfi, svo sem Sindrabær og Mánagarður. Var tekið undir áskorun SAMAN-hópsins. (Hólmfríður vék af fundi.)
9. Endurbætur á Grunnskóla Hornafjarðar – Heppuskóla
Greint frá því að nýjar tillögur frá arkitektum berist í þessari viku.
10. Önnur mál
Ályktun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi til ríkisstjórnar og sveitarfélaga, dags. 8. desember 2010
Þar segir m.a.:
„Nú þegar gerð fjárlaga fyrir árið 2011 stendur yfir, vilja Barnaheill - Save the Children á Íslandi beina því til ríkisstjórnar og sveitarfélaga að þau standi vörð um réttindi barna og skerði umfram allt ekki þjónustu við þau og fjölskyldur þeirra á sviði menntamála, heilbrigðisþjónustu og félagsþjónustu.
Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest, skulu öll börn njóta sömu réttinda, óháð stöðu þeirra og foreldra þeirra. Öll börn eiga meðfæddan rétt til lífs og þroska og öll börn eiga rétt á endurgjaldslausri grunnmenntun. Öll börn eiga rétt á góðri heilsu, umönnun og vernd. Áframhaldandi niðurskurður í menntakerfi, heilbrigðis- og félagsþjónustu getur haft alvarleg áhrif á stöðu fjölda barna í nútíð og framtíð.“
Formaður skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar sagði áherslur í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2011 vera mjög í samræmi við ályktun Barnaheilla og leggur áherslu á að hún verði höfð til hliðsjónar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.
Lovísa spurði hvort kannaður hafi verið kostnaður við að hafa hafragraut að morgni í grunnskólanum. Fram kom að það hafi ekki verið gert. Einnig rætt um aðstöðu til að gera slíkt á eldra stiginu (Heppuskóla). Þórgunnur sagði flesta foreldra sinna morgunmat barna sinna mjög vel.
Fundi slitið kl. 19:15


