Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd

Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11

11. fundur

 

Fundur haldinn    í skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd Hornafjarðar miðvikudaginn 25. maí 2011 kl. 16:30 í ráðhúsi Hornafjarðar.  

Mætt voru:    Ásgerður K. Gylfadóttir, formaður, Arna Ósk Harðardóttir,  Ásgeir Ásgeirsson, Lovísa Rósa Bjarnadóttir, Matthildur Ásmundardóttir, Þórgunnur Torfadóttir, Árdís Halldórsdóttir, Margrét Ingólfsdóttir, Hera Guðmundsdóttir, Herdís Tryggvadóttir, Íris H. Jóhannsdóttir, Valdemar Einarsson, Hólmfríður Þrúðmarsdóttir og Stefán Ólafsson.           

1.      Fundargerð 10. fundar

Engar athugasemdir gerðar.

2.      Sumarstarf Sindra 2011

Valdemar Einarsson gerði grein fyrir starfi Sindra á sumri komandi - leikjanámskeið, knattspyrna, frjálsar íþróttir, sund, körfubolti og dans sem verður í ágúst.  Sagði hann sumarstarfið verða hefðbundið, leikjanámskeiðin verði í júní og ágúst en ekki í júlí enda reynslan sýnt að þau væru nær ekkert sótt í þeim mánuði. Valdemar sagði aðstöðuna hafa gerbreyst með gervigrasvellinum, hann verði mikið nýttur í sumar.  Einnig greint frá brennibolta, kvennahlaupi, 17. júní hátíð og humarhátíð. Upplýsingar um starfsemina mun birtast á vefnum og einnig í Eystrahorni. (Valdemar vék af fundi)

3.      Starf félagsmiðstöðvar 2010 – 2011

Hólmfríður greindi frá lagfæringum á húsnæði félagsmiðstöðvar og fór yfir starfsemi hennar á starfsárinu. Greint frá markmiðum vetrarins, opnum húsum, viðburðum, starfsemi klúbba og SamAust hátíð sem haldin var á Höfn í þetta sinn. Einnig greint frá starfi ungmennaráðs. Sagði Hólmfríður mjög hafa skort á frumkvæði ráðsins og velti upp spurningum um hvernig virkja mætti ráðið betur. Þá sagði Hólmfríður að samstarf við grunnskólann hafi aukist töluvert í vetur frá því sem var. Rætt var um lán á húsnæði félagsmiðstöðvarinnar. Aðspurð sagðist Hólmfríður ekki vera ánægð með umgengni þeirra sem fengið hefðu húsið lánað á sumrin.  Spurt um aðkomu þeirra sem eldri eru en 16 ára að húsnæði félagsmiðstöðvar. Kom fram að sá aldurshópur hafi lítið notað húsnæðið þrátt fyrir að það væri í boði.

(Hólmfríður vék af fundi)

4.      Skýrsla rýnihóps um leikskólamál

Rýnihópurinn hélt fjóra formlega fundi og skilaði af sér skýrslu 23. maí sl.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd styður niðurstöður rýnihóps um leikskólamál.  (Margrét og Hera viku af fundi)

5.      Ytra mat grunnskóla, tillögur faghóps

(Þórgunnur kom inn á fundinn.) Stefán gerði grein fyrir tillögum faghóps sem skipaður var til að gera tillögur um ytra mat grunnskóla. Í faghópnum sátu sex manns, þrír frá mennta- og menningarmálaráðuneyti og þrír fulltrúar sveitarfélaga. Í tillögum faghópsins kemur m.a. fram að með sameiginlegu átaki ríkis og sveitarfélaga hafi allir skólar á landinu farið í gegnum ytra mat á fimm árum eftir að það hefur göngu sína.  Í skýrslunni eru kynntar tvær tillögur um skipan matsaðila. Önnur gerir ráð fyrir að ráðnir verði fimm til sex matsaðilar sem hver og einn fengi til liðs við sig einn til tvo aðila úr heimahéruðum.  Tillaga tvö gerir ráð fyrir að sett verði á laggirnar fjögur til sex landshlutateymi sem samanstanda að lágmarki af tveimur matsaðilum hvert. Einnig gert ráð fyrir að matsteymin, eins og í tillögu 1, fái til liðs við sig aðila úr nærsamfélagi skólanna til að skapa nálægð við þá. Greint frá að seinni tillagan hafi fengið mun meiri stuðning á vorþingi Grunns, félags starfsmanna skólaskrifstofa.  Við matið verði m.a. lögð áhersla á kennslu og nám en rannsóknir sýna að gæði kennslu hafi meiri áhrif á frammistöðu nemenda en nokkur annar þáttur í skólastarfi. Stjórnun komi þar næst á eftir sem áhrifaþáttur á árangur nemenda.

6.      Ákvörðun um opinn fund um skólamál

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að opinn fundur um skólamál verði haldinn í sept. – okt. 2011.

7.      Ósk Grunnskóla Hornafjarðar um að fá að ráða stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2011 – 2012

Grunnskóli Hornafjarðar óskar eftir að fá að ráða stuðningsfulltrúa í 80% starf fyrir skólaárið 2011 - 2012. Gert er ráð fyrir að launakostnaður verði um 2,4 – 2,5 milljónir vegna þessa starfs. Þórgunnur benti á að skorin hafi verið niður sambærileg staða stuðningsfulltrúa fyrir það skólaár sem nú er að ljúka.  Málið fer fyrir bæjarráð til lokaafgreiðslu.

8.      Ósk foreldra nemanda í Grunnskólanum í Hofgarði um að hann geti stundað sitt nám í 8. bekk Grunnskóla Hornafjarðar á skólaárið 2011 – 2012

Greint frá framangreindri ósk og hvernig hún er til komin. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að þetta verði heimilað enda er það í samráði við það sem sagt var af hálfu nefndarinnar á  fundi með foreldrum og starfsmönnum í Grunnskólanum í Hofgarði sl. vetur.

9.      Ráðning í stöðu verkefnastjóra við Grunnskóla Hornafjarðar

Þórgunnur greindi frá óánægju eins starfsmanns við skólann sem beinist að því hvernig staða verkefnastjóra við skólann var kynnt (auglýst) innan skólans, þ.e. að skort hafi á að staða verkefnisstjóra hafi verið vel kynnt fyrir kennurum sem starfa við skólann og deilt var á ráðningu í stöðu verkefnastjóra. Þá var deilt á úthlutun starfa sem greidd eru úr svo nefndum potti. Þórgunnur fór yfir svarbréf skólastjórnenda til viðkomandi starfsmanns og útskýrði með hvaða hætti ferlið var við kynningu og ráðningu í stöðu verkefnastjóra.  Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur áherslu á vönduð vinnubrögð við ráðningar starfsmanna skólanna. Þórgunnur sagði að eflaust mætti bæta vinnubrögð og tímamörk við auglýsingu og umsóknir.

10.  Tilkynning mennta- og menningarmálaráðuneytis um könnun á framboði valgreina á unglingastigi í grunnskóla

Til kynningar.

11.  Styrkumsókn íþróttamanns, vísað til nefndarinnar af bæjarráði

Sveinbjörg Zophoníasdóttir fjölþrautarkona sækir um styrk að upphæð 500 þús. kr. vegna æfinga og keppnisferðalaga innan lands og erlendis. Fram kemur að mjög hefur dregið úr styrkjum vegna þessa frá því sem áður var, m.a. af hendi Frjálsíþróttasambands Íslands og frjálsíþróttadeildar Sindra.

Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að veita Sveinbjörgu styrk að upphæð kr. 300 þús.

12.  Önnur mál

·         Ósk forsvarsmanna Skólahreysti um styrk til starfseminnar. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að styrkbeiðni verði hafnað. Vill fremur auka styrki til skólans og nemenda hans vegna þátttöku í keppninni.

·         Þórgunnur greindi frá ferðum með 9. bekk að Laugum í Sælingsdal sem væru mjög vel heppnaðar. Þá lagði hún til að í stað skólaferðalags 7. bekkinga til Vestmannaeyja verði farið í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði. Sagði hún sveitarfélagið þurfa koma sterkar að þessum þætti skólastarfsins með fjárframlögum.

·         Greint frá fyrirspurn hauks Helga Þorvaldssonar  forstöðumanns íþróttamannvirkja til umhverfisráðuneytis vegna túlkunar á 14. gr. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum. Svar ráðuneytisins er eftirfarandi:

„Vísað er til fyrirspurn yðar frá 9. þ.m. þar sem óskað er eftir túlkun á 14. gr. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum þar sem kveðið er á um að einungis foreldri eða forráðamaður barna megi hafa fleiri en tvö börn yngri en tíu ára með sér í sund. Óskað er eftir nánari skilgreiningu á hugtakinu forráðamaður.
Forráðamaður er einhver annar en foreldri barns og hefur forsjá yfir viðkomandi barni. Forráðamaður getur t.d. verið stjúpforeldri eða einstaklingur sem hefur fengið forsjá barnsins með samningi eða dómi. Um inntak forsjár fer samkvæmt ákvæðum barnalaga nr. 76/2003. Í 2. ml. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 814/2010 er þar af leiðandi verið að vísa til foreldris eða annars forsjáraðila barns. Sé ekki um foreldri eða forráðamann barna að ræða má einstaklingur eldri en 15 ára ekki hafa með sér í sund fleiri en tvö börn undir tíu ára aldri. Syndur einstaklingur eldri en 15 ára má einungis hafa með sér tvö börn undir tíu ára aldri nema að hann sé foreldri eða forráðamaður.


Dæmi l: Foreldri kemur með tvö börn sín bætir við einu barni sem annað foreldri á - óheimilt ef börnin eru undir tíu ára aldri.
Dæmi ll: Foreldri kemur með þrjú börn sín en að auki með þrjú börn sem annað foreldri á - óheimilt ef börn eru undir tíu ára aldri.
Telst foreldri sem kemur með börn annarra yngri en 10 ára forráðamaður þeirra ? Nei

 

·         Greint frá frumvarpi til laga um breytingu á lögum um grunnskóla nr. 91/2008. Frumvarpið gerir m.a. ráð fyrir að val um námsgreinar og námssvið skuli vera allt að fimmtungi námstíma en var áður um þriðjungur.

  

Fundi slitið kl. 19:00


Fundargerðir

Dag.grein
20.02.2002 Erindisbréf Skólanefndar
15.05.2013 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 35
17.04.2013 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefnd 34
20.03.2013 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 33
06.03.2013

Fundargerð skóla-,  íþrótta- og tómstundanefndar 32

20.02.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 31
23.01.2013 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 30
19.12.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 29
21.11.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 28
17.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar  27
10.10.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefnd 26
19.09.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 25
22.08.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 24
13.06.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 23
16.05.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 22
18.04.2012 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 21
21.03.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 20
15.02.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 19
18.01.2012 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 18
14.12.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 17
16.11.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 16
19.10.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-, og tómstundanefndar 15
21.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 14
07.09.2011 Fundargerð skóla- íþrótta og tómstundanefndar vinnufundur
17.08.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 13
15.06.2011 Fundargerð skóla, íþrótta og tómstundanefndar 12
25.05.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 11
27.04.2011 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 10
23.03.2011 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 9
16.02.2011 Fundargerð skóla-, íþrótta-  og tómstundanefndar 8
19.01.2011 Fundargerð skóla- ,íþrótta-, og tómstundanefndar 7
08.12.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 6
17.11.2010 Fundargerð skóla-, iþrótta- og tómstundanefndar 5
20.10.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar 4
15.09.2010 Fundargerð skóla- íþrótta- og tómstundanefndar 3
18.08.2010 Fundargerð skóla, íþrótta- og tómstundanefndar 2
23.06.2010 Fundargerð skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar  1
26.05.2010 Fundargerð skólanefndar 126
05.05.2010 Fundargerð skólanefndar 125
28.04.2010 Fundargerð skólanefndar 124
07.04.2010 Fundargerð skólanefndar 123
24.02.2010 Fundargerð skólanefndar 122
27.01.2010 Fundargerð skólanefndar 121
25.11.2009 Fundargerð skólanefndar 120
28.10.2009 Fundargerð skólanefndar 119
28.09.2009 Fundargerð skólanefndar 118
12.08.2009 Fundargerð skólanefndar 117
12.06.2009 Fundargerð skólanefndar 116
27.05.2009 Fundargerð skólanefndar 115
22.04.2009 Fundargerð skólanefndar 114
24.03.2009 Fundargerð skólanefndar 113
25.02.2009 Fundargerð Skólanefndar 112
29.01.2009 Fundargerð Skólanefndar 111
07.01.2009 Fundargerð skólanefndar 110
26.11.2008 Fundargerð skólanefndar 109
22.10.2008 Fundargerð skólanefndar 108
24.09.2008 Fundargerð skólanefndar 107
27.08.2008 Fundargerð skólanefndar 106
25.06.2008 Fundargerð skólanefndar 105
21.05.2008 Fundargerð skólanefndar 104
30.04.2008 Fundargerð skólanefndar103
26.03.2008 Fundargerð skólanefndar 102
27.02.2008 Fundargerð skólanefndar 101
23.01.2008 Fundargerð skólanefndar 100
17.12.2007 Fundargerð skólanefndar 99
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
28.11.2007 Fundargerð skólanefndar 98
24.10.2007 Fundargerð skólanefndar 97
26.09.2007 Fundargerð skólanefndar 96
13.08.2007 Fundargerð skólanefndar 95
13.06.2007 Fundargerð skólanefndar 94
23.05.2007 Fundargerð skólanefndar 93
14.05.2007 Fundargerð skólanefndar 92
28.03.2007 Fundargerð skólanefndar 91
22.02.2007 Fundargerð skólanefndar 90
24.01.2007 Fundargerð skólanefndar 89
29.12.2006 Fundargerð skólanefndar 88
29.11.2006 Fundargerð skólanefndar 87
08.11.2006 Fundargerð skólanefndar 86
19.09.2006 Fundargerð skólanefndar 85
16.08.2006 Fundargerð skólanefndar 84
26.06.2006 Fundargerð skólanefndar 83
24.05.2006 Fundargerð skólanefndar 82
27.04.2006 Fundargerð skólanefndar 81
22.03.2006 Fundargerð skólanefndar 80
22.02.2006 Fundargerð skólanefndar 79
25.01.2006 Fundargerð skólanefndar 78
23.11.2005 Fundargerð skólanefndar 77
26.10.2005 Fundargerð skólanefndar 76
28.09.2005 Fundargerð skólanefndar 75
24.08.2005 Fundargerð skólanefndar 74
22.06.2005 Fundargerð skólanefndar 73
23.05.2005 Fundargerð skólanefndar 72
18.05.2005 Fundargerð skólanefndar 71
19.04.2005 Fundargerð skólanefndar 70
16.03.2005 Fundargerð skólanefndar 69
23.02.2005 Fundargerð skólanefndar 68
26.01.2005 Fundargerð skólanefndar 67
25.01.2005 Fundargerð skólanefndar 78
08.12.2004 Fundargerð skólanefndar 66
26.11.2004 Fundargerð skólanefndar 65
28.10.2004 Fundargerð Skólanefndar 64
14.09.2004 Fundargerð Skólanefndar 63
14.06.2004 Fundargerð Skólanefndar 61
18.05.2004 Fundargerð Skólanefndar 60
31.03.2004 Fundargerð Skólanefndar 59
17.02.2004 Fundargerð Skólanefndar 58
28.01.2004 Fundargerð Skólanefndar 57
09.12.2003 Fundargerð Skólanefndar 56
19.11.2003 Fundargerð Skólanefndar 55
15.10.2003 Fundargerð Skólanefndar 54
17.09.2003 Fundargerð Skólanefndar 53
20.08.2003 Fundargerð Skólanefndar 52
16.06.2003 Fundargerð Skólanefndar 51
21.05.2003 Fundargerð Skólanefndar 50
23.04.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.03.2003 Fundargerð Skólanefndar
25.02.2003 Fundargerð Skólanefndar
19.02.2003 Skipurit
15.01.2003 Fundargerð Skólanefndar
18.12.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.11.2002 Fundargerð Skólanefndar
16.10.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.09.2002 Fundargerð Skólanefndar
26.06.2002 Fundargerð Skólanefndar
03.04.2002 Fundargerð Skólanefndar
20.02.2002 Fundargerð Skólanefndar
23.01.2002 Fundargerð Skólanefndar
                       

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica